Page 1 of 1
AG Fyrsta tilraun = Versti Léttöl sem ég hef gert.
Posted: 10. Jun 2011 18:43
by Burger
Sælir. Ég var að reyna við frumraunir að gera AG. Ég varð heldur betur svekktur með útkomuna.
Eina í ferlinu sem ég get bent á að gæti hafa klikkað er hitastig við gerjun. En er það svo svakalega mikið mál.
Reikna með að hitinn hafi verið frá 25-30c. Það er mjög vont bragð af honum súrt. Hann er búinn að vera í eftir gerjun í 1-1/2 mánuð. Þetta átti að verða Bee Cave.Reiknaði með 6.6g. vs liter af priming sykri.
Hops fóru líka með í gerjun eða ég síaði þá ekkert af neinu viti frá er það kannski málið ?
Þegar ég var að setja á flöskur var þetta langbesta sull sem ég er smakkað en núna langar mig helst að hella þessu öllu niður

/ Frekar pínlegt þar sem þetta lofaði svo góðu.
Einhverjar hugmyndir ? ? ?
Kveðja Vandræða Gemlingur
Re: AG Fyrsta tilraun = Versti Léttöl sem ég hef gert.
Posted: 10. Jun 2011 19:18
by sigurdur
Það getur svosem verið margt sem hefur klikkað, en hér eru tvær hugmyndir:
1. 25-30°C umhverfishitastig í gerjun er MJÖG hátt, þú mátt búast við að hitastigið á gerjuninni sjálfri sé a.m.k. 2-3°C hærra en umhverfishitastigið þegar mest gengur á.
2. Ef þú hefur ekki hreinsað/sótthreinsað flöskurnar nægilega vel, þá getur það útskýrt sýkingu.
Nú, annars getur þetta verið grænn bjór.
Mér finnst bjórinn ekki verða góður fyrr en hann er búinn að vera a.m.k. 3 vikur á flöskum.
Re: AG Fyrsta tilraun = Versti Léttöl sem ég hef gert.
Posted: 10. Jun 2011 19:55
by Burger
Hann er búinn að vera ca.2 mánuði á flöskum. Reyndar þegar ég setti hann á flöskur þá setti ég hann á annan kút með miklum látum gæti hafa sett alveg súber mikið að súrefni í hann þá "vissi ekki betur". Sá það í öðrum þræði að það gæti verið vesen.
Re: AG Fyrsta tilraun = Versti Léttöl sem ég hef gert.
Posted: 10. Jun 2011 20:13
by gunnarolis
Ég ætla nú ekki að vera með neina sleggjudóma, en ef þú vissir ekki að súrefni færi illa með bjórinn, þá er væntanlega ýmislegt fleira í ferlinu sem þú varst ekki nógu vel lesinn um.
Það státa fæstir af alveg frábærum bjór í fyrsta skipti, minn fyrsti bjór var til dæmis ekkert tímamótabrugg. Það sem ég mæli með að þú gerir er að lesa meira um ferlið og prófa aftur, spurja spurninga og lesa gamla þræði hérna, bjórinn verður betri með tímanum.
Ekki gefast upp, bjórinn verður bara betri og betri.
Re: AG Fyrsta tilraun = Versti Léttöl sem ég hef gert.
Posted: 12. Jun 2011 05:28
by Burger
Sælir ég fór nú bara eftir leiðbeiningum Brew.is. Þar er t.d. ekki minnst á að fleyta í annan kút né að passa að fá ekki súrefni í bjórinn á þessu stigi ferilsins. En nú er ég vitrari og stefni á að gera besta bjór í heimi í framtíðinni, Skál

Re: AG Fyrsta tilraun = Versti Léttöl sem ég hef gert.
Posted: 14. Jun 2011 20:12
by Feðgar
er bee cave uppskriftin à brew.is ekki IPA? Getur ekki bara verið að bjòrinn sè yfirhumlaður fyrir þinn smekk, hann er það fyrir okkar smekk. Enda vorum við ekki ánægðir með ùtkomuna, en það er bara stìllinn sem okkur mislìkaði, það var ekkert að bjòrnum sem slìkt
Re: AG Fyrsta tilraun = Versti Léttöl sem ég hef gert.
Posted: 14. Jun 2011 20:19
by bjarkith
Nei BeeCaveinn er APA(American Pale Ale) sem er jú meira humlaður en flestir lagerbjórar en töluvert minna humlaður en flestir IPA.