Page 1 of 1

Ostagerð hjá Kalla, þriðjudags kvöldið, kl19:30....

Posted: 9. Jun 2009 19:04
by karlp
ég ætla að bjoða ykkar að heimsókn, og hjalpa/horfa a mig bua til harðan ost, eins og ég var með á fyrsta fundinum

Heimilsfangið mitt er Hverfisgata 104c, bakhús á milli Hverfisgótu og Laugarvegs. Best að leggja á bak við Landsbankann.

sjáumst þá kl 1930! ef þið finna ekki húsið, hringiði í mig á 8222595.

Re: Ostagerð hjá Kalla, þriðjudags kvöldið, kl19:30....

Posted: 9. Jun 2009 19:51
by karlp
j0, ekki í dag :) þriðjudaginn _16_ Juni :)

Re: Ostagerð hjá Kalla, þriðjudags kvöldið, kl19:30....

Posted: 9. Jun 2009 19:58
by Hjalti
*hjúkk*

Ég hringdi alveg nett stressaður og hélt að þetta væri í dag....

Verð samt því miður ekki heima þegar þetta verður en þetta er frábært boð hjá þér!

Re: Ostagerð hjá Kalla, þriðjudags kvöldið, kl19:30....

Posted: 9. Jun 2009 20:18
by Eyvindur
Æ, vesen að þurfa endilega að vera fjarri góðu gamni um helgina og hálfa næstu viku... Vona að ég fái tækifæri til að læra af þér síðar...

Re: Ostagerð hjá Kalla, þriðjudags kvöldið, kl19:30....

Posted: 10. Jun 2009 00:17
by Andri
Vona að ég muni þetta eftir viku, ég reyni að mæta.
Ég var að prófa að gera mozarella um daginn, heppnaðist ekki vel þar sem ég ætlaði að gera þetta í litlu magni...hitaði þetta of mikið og bara fór allt í sundur :D

Re: Ostagerð hjá Kalla, þriðjudags kvöldið, kl19:30....

Posted: 10. Jun 2009 16:32
by Öli
Andri: ég keypti mér svona mæli í Lakeland í Skotlandi. Mjög fljótur að uppfæra nýtt hitastig og með 0.1 °c nákvæmni. Með oddi á endanum svo þú getur mælt hitastig í nánast öllu. Mögnuð græja.

Re: Ostagerð hjá Kalla, þriðjudags kvöldið, kl19:30....

Posted: 10. Jun 2009 21:55
by Öli
Hjalti, geturðu ekki fiktað í css-inu og gert þessa linka meira áberandi, held að síðasti linkurinn minn hafi varla sést.

Re: Ostagerð hjá Kalla, þriðjudags kvöldið, kl19:30....

Posted: 10. Jun 2009 21:58
by Eyvindur
Mér finnst ekkert að tenglunum... Sé þá bara alveg ágætlega. Oftast ræður maður líka af samhenginu þegar um tengil er að ræða.

Annars finnst mér alltaf best að setja slóðina sjálfa inn, og tengil á hana. Það getur stundum verið gott að geta afritað slóðina...

Re: Ostagerð hjá Kalla, þriðjudags kvöldið, kl19:30....

Posted: 16. Jun 2009 19:08
by karlp
munið ykkur, við erum tala um núna! ég er byrjun að þrifa eldhús.... :)

Re: Ostagerð hjá Kalla, þriðjudags kvöldið, kl19:30....

Posted: 17. Jun 2009 10:48
by arnilong
Ég vissi af þessu í gær en ég var einn heima með strákinn min :(

Re: Ostagerð hjá Kalla, þriðjudags kvöldið, kl19:30....

Posted: 17. Jun 2009 23:13
by Andri
var að mála, steingleymdi þessu einhvernveginn :)