Page 1 of 1
Að hindra ótímabæra öldrun á bjór
Posted: 15. Apr 2011 08:31
by kalli
Þetta er handa efnafræðingunum í hópnum:
http://www.bbc.co.uk/news/science-environment-13067547" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Að hindra ótímabæra öldrun á bjór
Posted: 19. Apr 2011 21:49
by BeerMeph
Já merkilegt nokk. Þeir gleyma að taka fram að aðalástæða fyrir myndun þessara efna er útfjólublátt ljós og því verður minna af humlaöldrunarleiðinindum í dökkum flöskum. Dósir eru sér á báti þar sem málmurinn leysist upp að einhverju leiti með tímanum og veldur öldrunareinkennum þó að utfjólubláir geislar nái aldrei í bjór í dósum.
Hvað hagnýtingu varðar um sýrustigs bjórsins á commercial skala veit ég ekki alveg. Breytingar á sýrustigi átappaðs og síaðs bjór breytir bragðinu mikið og mjög erfitt væri að reyna að brugga bjór með eitthvað fyrirfram ákveðið sýrustig.
Er líka nokkuð svo mikil eftispurn eftir bjór með eitthvað mikið lengra geymsluþol en þekkist í dag?
Annars fagna ég alltaf vísindalegur niðurstöðum tengt bjórbruggun!
Re: Að hindra ótímabæra öldrun á bjór
Posted: 19. Apr 2011 22:30
by anton
Meðan maður er ekki með ljósabekk við hliðina á björkössunum sínum þá ætti maður að vera í sæmilegu ástandi varðandi útfjólublátt ljós.
Re: Að hindra ótímabæra öldrun á bjór
Posted: 20. Apr 2011 10:54
by sigurdur
Hagnýtasta ráðið sem ég fann í greininni er að geyma bjórinn í stöðugu hitastigi (þ.e.a.s geyma bjórinn í kulda) til að geta geymt bjórinn lengur.
Re: Að hindra ótímabæra öldrun á bjór
Posted: 20. Apr 2011 12:43
by anton
Já. Væri til í að eiga stóran (innangengan) kæli til að geyma korn, bjór og allt slíkt í t.d. 10°
Hef horft á að kaupa stæðstu gerð af kælikystu og setja utanáliggjandi hitastýringu á hana. Maður getur raðað mörgum lítrum af bjór í slíkt og allan kornlagerinn. Það er líklega einfaldasta leiðin til að halda ferskleikanum á öllu í hámarki. Væri jafnvel hægt að gera lagerinn í henni.
Re: Að hindra ótímabæra öldrun á bjór
Posted: 20. Apr 2011 14:26
by hrafnkell
anton wrote:Já. Væri til í að eiga stóran (innangengan) kæli til að geyma korn, bjór og allt slíkt í t.d. 10°
Hef horft á að kaupa stæðstu gerð af kælikystu og setja utanáliggjandi hitastýringu á hana. Maður getur raðað mörgum lítrum af bjór í slíkt og allan kornlagerinn. Það er líklega einfaldasta leiðin til að halda ferskleikanum á öllu í hámarki. Væri jafnvel hægt að gera lagerinn í henni.
Já, það væri gaman að eiga svosem eina 2-3 rúmmetra frystikistu

Re: Að hindra ótímabæra öldrun á bjór
Posted: 20. Apr 2011 16:50
by gunnarolis
Anton, það er merkilegt hvað skúnkun á bjór tekur stuttan tíma...sólarljós í 5 tíma fer langt með að eyðileggja annars fínan bjór í grænni flösku.
Re: Að hindra ótímabæra öldrun á bjór
Posted: 20. Apr 2011 23:28
by anton
gunnarolis wrote:Anton, það er merkilegt hvað skúnkun á bjór tekur stuttan tíma...sólarljós í 5 tíma fer langt með að eyðileggja annars fínan bjór í grænni flösku.
Jamm ég veit. Ég geymi líka mitt í kössum

á kaldasta stöðugasta htiastigs-stað sem ég hef aðgang að
