Page 1 of 2
Beer Gun
Posted: 10. Mar 2011 21:24
by bcool
Var að skoða svona Byssu á netinu og datt í hug að smíða mér eina slíka... þessi sem að virðist vera í miklu uppáhaldi hjá Ameríkananum er frá Blichmann....Eini gallinn fynnst mér vera þetta gúmmi neðst á henni en það á það til að detta af og skemmast eða týnast eins þetta klunnalega skaft með gormi sem togar rörið upp til að opna fyrir vökvan...Notaði sömu hugmynd en breytti þessu til hins betra fynnst mér....endilega segið ykkar skoðun á þessu...
Hér kemur mín útgáfa af þessu...Frekar slappar myndir
Re: Beer Gun
Posted: 11. Mar 2011 00:06
by gunnarolis
Geturðu blætt kolsýru í flöskuna með þessu?
Þetta er mjög töff, hvað kostaði efnið sirka í þetta?
Re: Beer Gun
Posted: 11. Mar 2011 09:10
by bcool
Já þessi byssa er hugsuð fyrir það...þá er best að hafa flöskurnar við sama hitastig og bjórinn er við og um 3 metra af 5mm slöngu frá kút að byssu...síðan er blætt kolsýru inn á flöskuna og rekur hún þá súrefnið út....bjórnum skotið inná og tappinn á...við þetta tapast ekki kolsýran úr bjórnum....efniskostnaður við þetta er um 7.000kr en ég á von á öðrum inntaksloka og veit ekki hvað hann mun kosta...
Re: Beer Gun
Posted: 11. Mar 2011 13:09
by gunnarolis
Ok, þetta er geðveikt.
Ég væri til í að fá detailed info um hvar efnið í þetta fæst og svona, er mjög til í að smíða eina slíka.
Re: Beer Gun
Posted: 11. Mar 2011 14:57
by bcool
Er kominn með hentugan loka í þetta..er með hulsu sem er rennt fram til að opna fyrir kolsýruna....Get smíðað nokkrar byssur ef að áhugi er fyrir hendi....Það er talsver vinna við þetta silfurkveiking og rennismíði veit ekki hvort allir hafa aðgang að slíku....mun ég selja þetta á kostnaðarverði + vinnu hér er svo mynd af samskonar loka og mun ég birta fleiri myndir af þessu um helgina...

Re: Beer Gun
Posted: 11. Mar 2011 15:26
by hrafnkell
Ég hefði áhuga á þessu ef þetta reynist vel og verðið er þolanlegt

Re: Beer Gun
Posted: 11. Mar 2011 16:57
by gunnarolis
Sömuleiðis, ég er spenntur.
Re: Beer Gun
Posted: 11. Mar 2011 17:04
by andrimar
+1
Re: Beer Gun
Posted: 11. Mar 2011 19:05
by Oli
ég líka
Re: Beer Gun
Posted: 11. Mar 2011 21:45
by Eyvindur
Aldrei að vita.
Re: Beer Gun
Posted: 12. Mar 2011 17:22
by bcool
Þá er maður búin að testa græjuna.....lofar bara góðu og ekkert mál að nota þetta var með 3/16" slöngu frá kolsýrukútnum en sveraði upp í 3/8" þá var þetta alveg eins og draumur....ekkert mál að halda á byssunni í annari hendi og vinna þetta...lofar góðu
Re: Beer Gun
Posted: 12. Mar 2011 17:28
by Eyvindur
Flott mál. En ég myndi ekki nota klórsóda á stál - það hefur slæm áhrif ef mig misminnir ekki. Ég nota aldrei annað en joðófór á stál.
Re: Beer Gun
Posted: 12. Mar 2011 17:29
by bcool
Ryðfrýtt 316 stál
Re: Beer Gun
Posted: 12. Mar 2011 17:49
by Eyvindur
Úr How to Brew:
Bleach should be avoided because the high pH of a bleach solution can cause corrosion of aluminum and to a lessor degree of stainless steel.
Þetta er ekkert hættulegt, en gæti skemmt þetta með tímanum. Bara gott að hafa í huga.
Þú getur lesið nánar um þetta hérna:
http://howtobrew.com/appendices/appendixB.html
Re: Beer Gun
Posted: 13. Mar 2011 00:53
by bcool
Já takk fyrir ábendinguna....var reyndar með mjög veika blöndu í þessu....en alltaf gaman að fá ábendingar frá fróðari mönnum varðandi þetta....
Re: Beer Gun
Posted: 13. Mar 2011 09:26
by Eyvindur
Já, þetta er ekki eitthvað sem þarf að hafa stórar áhyggjur af. En eins og hann útskýrir þarna gæti mögulega orðið tæring með tímanum, og bara um að gera að auka endinguna með því að nota frekar joðófór.
Re: Beer Gun
Posted: 13. Mar 2011 10:11
by hrafnkell
Ég hef skemmt hitaelement með því að láta veika klórblönda liggja á þeim í nokkra daga... Það var pínu DOH moment
Þori ekki að nota klór til að hreinsa neina málma lengur.
Re: Beer Gun
Posted: 13. Mar 2011 14:47
by gunnarolis
Það er í lagi að nota klór á stál ef klórinn er síðan skolaður af og liggur ekki mjög lengi. Ástæðan fyrir því að menn forðast að nota klór á stál er sú að stálið verður á endanum skýjað útaf klórnum.
Re: Beer Gun
Posted: 13. Mar 2011 15:01
by hrafnkell
Skýjað útaf tæringu

Það tekur þó frekar langan tíma og líklega ekki vandamál ef maður lætur klórinn ekki liggja á stálinu og ef maður notar frekar þunna blöndu.
Re: Beer Gun
Posted: 13. Mar 2011 16:02
by Maddi
Skil ég rétt, kolsýrir þetta bjórinn í flöskunni í staðinn fyrir að bæta við sykri fyrir átöppun?
Re: Beer Gun
Posted: 13. Mar 2011 16:33
by hrafnkell
Maddi wrote:Skil ég rétt, kolsýrir þetta bjórinn í flöskunni í staðinn fyrir að bæta við sykri fyrir átöppun?
Þetta er til þess að færa bjór úr kút yfir á flöskur, og viðhalda kolsýrunni úr kútnum.
Re: Beer Gun
Posted: 16. Mar 2011 11:47
by bcool
Jæja þá er maður komin með verð í þetta ef að menn hafa áhuga á þessu Byssan með 3 metra slöngu er á 11.000kr... er með þetta á kostnaðarverði + vinna..Þeir sama hafa áhuga á þessu sendið mér mail....P.S get tekið kút uppí...byssa v.s kútur

Re: Beer Gun
Posted: 16. Mar 2011 13:50
by gunnarolis
Er hægt að fá að prófa þetta/sjá þetta áður en maður staðfestir pöntun?
Re: Beer Gun
Posted: 16. Mar 2011 15:22
by hrafnkell
gunnarolis wrote:Er hægt að fá að prófa þetta/sjá þetta áður en maður staðfestir pöntun?
Tek undir þetta. Ég á líklega einn kút sem ég get látið þig fá

Re: Beer Gun
Posted: 21. Mar 2011 11:26
by Silenus
Ég er game ef þetta virkar, var annars búinn að finna BeerGun í DK á 18 þús. og get fengið hana með systir minni eftir c.a. tvær vikur.