Page 1 of 1

Koparvinnsla?

Posted: 27. Jan 2011 01:07
by gve
Veit eitthver hér um eitthvað fyrirtæki sem vinnur með kopar ( getur gert tunnu/pott ur kopar eða riðfríu stali)

öll svör vel þegin takk fyrir

Re: Koparvinnsla?

Posted: 27. Jan 2011 08:11
by kalli
gve wrote:Veit eitthver hér um eitthvað fyrirtæki sem vinnur með kopar ( getur gert tunnu/pott ur kopar eða riðfríu stali)

öll svör vel þegin takk fyrir
Ég myndi gleyma öllu um kopar. Kopar er orðinn dýrari en ryðfrítt stál og er þar að auki ekki eins hentugur fyrir matvæli. Það fellur á hann og er meiri vinna að þrífa hann. Í Bandaríkjunum er ekki mælt með því að nota kopar við matvæli vegna blýinnihalds.

Ég myndi kaupa stálið í Ferró Zink (ferro.is). Platan hjá þeim kostar helming af því sem hún kostar hjá Málmtækni. Svo er hægt að fá stálið valsað í hólk í einhverri blikksmiðjunni. Blikksmiðja Reykjavíkur ætlar að valsa svipað fyrir mig fyrir 2.000 kall. Það er víða hægt að fá þetta soðið. Ég myndi hringja í nokkur verkstæði og fá tilboð.