Page 1 of 1

Wyeast Labs #1056

Posted: 2. Jan 2011 00:59
by kalli
Mig vantaði Wyeast Labs #1056 í Amarillo IPA'inn minn. Eftir smá rannsóknir sýnist mér að Wyeast Labs #1056 == WLP001 == S-05 - Sama strain í öllum
Ég á bæði WLP001 og S-05 => málinu reddað
Getur einhver ykkar snillinganna sagt mér hvort þetta sé rétt?

Og þá vaknar spurning númer tvö: Eru til töflur einhversstaðar yfir ger hinna ýmsu framleiðanda þar sem sést hvaða ger má nota í stað fyrir annað ger? Ég á til dæmis í svipuðu máli með Wyeast Labs #1099, en almennt væri slík tafla gríðarlega gagnleg.

Re: Wyeast Labs #1056

Posted: 2. Jan 2011 01:10
by kalli
Jæja, ég get sjálfur svarað spurningu tvö. Sjá þessar fínu töflur hjá Jamil "himself":
http://www.mrmalty.com/yeast.htm" onclick="window.open(this.href);return false;
Hreint ómissandi upplýsingar.

Re: Wyeast Labs #1056

Posted: 2. Jan 2011 01:23
by kalli
Og nú varðandi Wyeast Labs #1099, þá er ekkert sambærilegt til frá White Labs, en Safale S-04 á að vera sambærilegt.

Re: Wyeast Labs #1056

Posted: 2. Jan 2011 01:46
by kalli
kalli wrote:Og nú varðandi Wyeast Labs #1099, þá er ekkert sambærilegt til frá White Labs, en Safale S-04 á að vera sambærilegt.
S-04 á reyndar að vera sama strain og #1099. #1099 er lýst þannig að það gefi malt- og ávaxtakenndan karakter, en S-04 er ekki lýst þannig :?

Re: Wyeast Labs #1056

Posted: 2. Jan 2011 10:51
by kristfin
í einfalda heiminum mínum þá horfi ég til wlp002 sem low gravity ensk og wlp007 ~ safale s04 fyrir high gravity english. ég á reyndar ekki wlp007 en nota wy1084 irish í staðinn. ef maður vill síðan fá minna eða meira esterískt bragð þá stýrir maður hitanum.