Page 1 of 1
[Óska eftir] London Ale Yeast
Posted: 28. Dec 2010 04:22
by halldor
Á einhver London þurrgerið frá Danstar? Er kannski hætt að framleiða það?
Ég man eftir að hafa séð það á einhverjum vefverslunum en finn það ekki núna.
Ég væri reyndar alveg til í Wyeast 1028 ef einhver á sýnishorn fyrir mig.
Í staðinn get ég látið (nánast) hvaða malt sem er, hvaða humla sem er og hvaða þurrger sem er. Einnig á ég tappa, whirlfloc, burton water sölt, kalsíum klóríð og eiginlega bara allt sem hugurinn girnist

Re: [Óska eftir] London Ale Yeast
Posted: 28. Dec 2010 10:36
by hrafnkell
Ég á bara windsor og nottingham ale...
Re: [Óska eftir] London Ale Yeast
Posted: 28. Dec 2010 12:23
by halldor
Ég líka

Ég var að hugsa um að nota Windsor gerið bara í staðinn (Í Roburst Porter).
Hvað segja menn við því? Ætti ég frekar að fara í S-04 kannski?
Re: [Óska eftir] London Ale Yeast
Posted: 28. Dec 2010 14:21
by gunnarolis
Ertu að fara að brugga núna á fimmtudaginn?
Ég á London Ale (WLP023) sem ég er að fara að rækta upp fyrir sjálfann mig, gæti alveg splittað því í tvennt ef ég er í stuði...
Ég á reyndar líka Irish Ale (WLP004) sem gæti skv þessum sérfræðingu hér :
http://www.homebrewtalk.com/f12/robust- ... ndex2.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Gengið í robust porter.
Re: [Óska eftir] London Ale Yeast
Posted: 28. Dec 2010 15:40
by kristfin
ég er með wlp002 sem og winsor þurrger, 002 er í krukku, tilbúið í slaginn
Re: [Óska eftir] London Ale Yeast
Posted: 28. Dec 2010 16:41
by halldor
gunnarolis wrote:Ertu að fara að brugga núna á fimmtudaginn?
Ég á London Ale (WLP023) sem ég er að fara að rækta upp fyrir sjálfann mig, gæti alveg splittað því í tvennt ef ég er í stuði...
Ég á reyndar líka Irish Ale (WLP004) sem gæti skv þessum sérfræðingu hér :
http://www.homebrewtalk.com/f12/robust- ... ndex2.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Gengið í robust porter.
Já brugg á fimmtudaginn.
WLP023 hljómar frábærlega ef þú ert í stuði. Myndi það ganga upp fyrir fimmtudaginn?
Re: [Óska eftir] London Ale Yeast
Posted: 28. Dec 2010 17:16
by gunnarolis
Það er held ég alveg frekar tæpt að rækta upp starter á 2 dögum...
Ef þú ætlar að leggja í á fimmtudaginn mundi ég hugsanlega taka WLP002 hjá Stjána, hann er með góða leðju í krukku ef ég þekki hann rétt.
Ef þú ert til í að bíða aðeins lengur, þá get ég ræktað upp fyrir þig...
Re: [Óska eftir] London Ale Yeast
Posted: 28. Dec 2010 17:51
by kristfin
ég á líka írskt ölger í krukkur, wy1084, ég mundi nota það frekar í robust porter. wlp002 er fínt í bitter og mild og jafnvel venjulegan porter. en það hefur lítið úthald, er ekki að gerjast nema svona 65-70%.