Page 1 of 1
WB-06
Posted: 20. Dec 2010 18:50
by kalli
Hvernig var aftur þessi regla með WB-06 og hitastig til að bjórinn verði ekki súr á bragðið?
Re: WB-06
Posted: 20. Dec 2010 23:14
by sigurdur
Var regla um WB-06?
Jæja, ég er a.m.k. búinn að prófa að gerja bjórinn við ~21°C umhverfishitastig og bjórinn varð of súr (að mínu mati).
Ég myndi prófa ~17°C.
Re: WB-06
Posted: 20. Dec 2010 23:19
by kalli
sigurdur wrote:Var regla um WB-06?
Jæja, ég er a.m.k. búinn að prófa að gerja bjórinn við ~21°C umhverfishitastig og bjórinn varð of súr (að mínu mati).
Ég myndi prófa ~17°C.
Ég gerði einn bjór með WB-06 og hann varð súr. Svo sagði einhver mér að það væri til þumalputtaregla um að samanlagt hitastig við gerjun og eftirgerjun ætti að vera eitthvað ákveðið. Man ekki hver það var.
Re: WB-06
Posted: 20. Dec 2010 23:46
by kristfin
pitching hiti + gerjunarhiti á að vera samtals 30. pitching hiti á að vera lægri en gerjunarhiti, 14+16 eða 13+17 er svona klassík.
annars er ég ekki hrifinn af þessu geri eftir að ég smakkaði wb06. ég hef samt smakkað bjór frá sigurði idle sem var fínn, með þessu geri, en mér hefur ekki tekist það
Re: WB-06
Posted: 20. Dec 2010 23:51
by Bjarki
Þumalputtareglan sem þú talar um er skellaútíhitastig + gerjunarhitastig = 30, minnir mig þ.e. ef skellaútí hiti er 10 skal gerja við 20°C eða þannig

Re: WB-06
Posted: 21. Dec 2010 00:13
by kalli
Takk fyrir

Re: WB-06
Posted: 21. Dec 2010 09:46
by kristfin
kristfin wrote:pitching hiti + gerjunarhiti á að vera samtals 30. pitching hiti á að vera lægri en gerjunarhiti, 14+16 eða 13+17 er svona klassík.
annars er ég ekki hrifinn af þessu geri eftir að ég smakkaði wb06. ég hef samt smakkað bjór frá sigurði idle sem var fínn, með þessu geri, en mér hefur ekki tekist það
eftir að ég smakkaði 3068 átti það að vera
Re: WB-06
Posted: 23. Dec 2010 10:23
by Idle
Síðast þegar ég lagði í hveitibjór, þá minnir mig að ég hafi pitchað við 16°C, og gerjað svo áfram við 18°C í 10 daga. Þá fór kauði á flöskur, og allir urðu glaðir. Enn glaðari þegar flöskurnar voru opnaðar á ný. Rámar þó eitthvað í að í eitthvert sinn hafi ég pitchað við 16°C, og leyft honum svo að dunda sér rólega upp í 20°C næstu sólarhringana. Hef aldrei orðið fyrir vonbrigðum með WB-06 (þó vissulega sé til mun betra ger).
