Page 1 of 1
Flöskur
Posted: 9. Dec 2010 09:29
by HlynDiezel
Hvaðan eru menn að nálgast flöskur undir afurðirnar sínar?
Ég var tiltölulega nýbúinn að fara með stóran skammt í endurvinnsluna þegar ég ákvað að hefja bjórgerð þannig að ég á frekar lítinn lager til í geymslunni heima.
Þessar flöskur sem eru til sölu í ámunni fannst mér líka óhóflega dýrar þar sem maður gæti borgað 50% meira í ÁTVR og fengið samskonar flöskur fullar af bjór.
Eru einhverjir aðrir að selja tómar glerflöskur undir bjórgerð?
Re: Flöskur
Posted: 9. Dec 2010 10:00
by Dori
Þegar ég steig mín fyrstu skref í heimabruggi (fyrir mörgum árum) var hægt að kaupa tómar flöskur í kössum hjá Endurvinnslunni í Knarrarvogi. Þetta voru allt umbúðir af veitingahúsum.
Hafiði prófað að tala við þá?
D
Re: Flöskur
Posted: 9. Dec 2010 11:06
by HlynDiezel
Ætla að prófa að bjalla í þá og sjá hvað þeir segja.
Önnur spurning, er einhverstaðar hægt að nálgast svona klassíska plastkassa undir bjórflöskur hérna heima? Svona kassa eins og maður fær nánast allan bjórinn sinn í í hvaða matvöruverslun sem er í danmörku.
Re: Flöskur
Posted: 9. Dec 2010 11:17
by anton
Það koma nokkrir bjórar í svona plastkössum í ríkinu... maður þarf að mæta í jakkafötum og bera sig aumlega og þá hugsanlega fær maður kassa

ef hann er þá yfirhöfuð til. Enda lítið af björum sem í slíkum kössum koma. Sumir kassarnir jafnvel sendir til baka, skilagjald, meðan aðra kassa borgar sig líklega ekki að senda til baka...
Ég get allavega upplýst að ég hef náð að útvega mér einn kassa.
Re: Flöskur
Posted: 9. Dec 2010 18:05
by sigurdur
Það er bara að hvetja alla í kring um þig að gefa þér glerið úr notuðum flöskum. Bara muna að láta skola vel.
Ég á 5 svona plast kassa, en það er bara út af spillingu.
Re: Flöskur
Posted: 9. Dec 2010 20:13
by kristfin
ég varað taka til hjá mér og áhelling afflöskum ef einvher vill
Re: Flöskur
Posted: 9. Dec 2010 21:32
by anton
kristfin wrote:ég varað taka til hjá mér og áhelling afflöskum ef einvher vill
Ég get reddað þér lyklaborði með bilstöng sem virkar
En flöskurnar eru fljótar að safnast saman ef maður er duglegur að vinna í því

Re: Flöskur
Posted: 9. Dec 2010 22:24
by kristfin
anton wrote:kristfin wrote:ég varað taka til hjá mér og áhelling afflöskum ef einvher vill
Ég get reddað þér lyklaborði með bilstöng sem virkar
En flöskurnar eru fljótar að safnast saman ef maður er duglegur að vinna í því

ég var heillengi að fatta þennan

Re: Flöskur
Posted: 9. Dec 2010 22:46
by bjarkith
Ég reyndi að fá vínflöskur hjá endurvinnslunni fyrir svona ári síðan, þeir sögðu mér að þeir mættu ekki lengur gefa/selja þær útaf heilbrigðiseftirlytinu.