Page 1 of 1

Jóla bock frá Ölvisholti?

Posted: 29. Nov 2010 11:16
by olihelgi
Sæl veriði.

Vitið þið hvort að Jóla bock-inn frá Ölvisholti sé kominn í verslanir ÁTVR? Ég hringdi í Heiðrúnu áðan og þeir tjáðu mér að hann væri væntanlegur 12. des. Það er alltof seint að mínu mati.

Maður fer að verða stressaður... :shock:

Kveðja,
Óli Helgi.

Re: Jóla bock frá Ölvisholti?

Posted: 29. Nov 2010 11:31
by hrafnkell
Jóla Bock er frá Viking, ekki ölvisholti.

Ölvisholt er svo með jólabjór sem ég man ekki hvað heitir, en hann átti að koma í verslanir fljótlega held ég.

Re: Jóla bock frá Ölvisholti?

Posted: 29. Nov 2010 12:13
by anton
Ég hef fyrir áreiðanlegar heimildir að seinasta föstudagsmorgun voru innan við 100 kassar af Víking Jólabock til í verslunum víðsvegar (aðalega úti á landi)
Það kemur ekki meira í verslanir. Innköllunin á sínum tíma var tímabundin og vegna þess aði í sömu verslun brotnuðu 3 slíkir bjórar þegar kúnninn var að setja í pokana. Líklega að sá "kassi" hafi lent í ruglinu.

Ég heyrði jafnframt að sá bjór ætti líklega eftir um 10 daga í lagerengu í flöskunum ?!? svo að þeir sem eiga slíkar veigar ættu að reyna að halda þeim frá upptakaranum í a.m.k. viku til að fá rétt bragð.


En allavega to the topic, Ölvisholt ætlar að setja á markað Jóla Bock bjór líka, reyktan, ég hélt að hann ætti að vera búinn detta í búðir, en veit ekki meir. Verð vonsvikinn ef að ég get ekki sótt hann fyrir næstu helgi.

Re: Jóla bock frá Ölvisholti?

Posted: 29. Nov 2010 12:33
by hrafnkell
Ég hringdi í átvr og fékk þau svör að hann væri bara til útá landi, t.d. selfossi og reykjanesbæ, húsavík og fleiri stöðum. Engin verslun í bænum, nema þá örfáar flöskur sem er óvíst að séu á staðnum þegar maður fer þangað.

Það verður ekki gert meira af honum.

Re: Jóla bock frá Ölvisholti?

Posted: 29. Nov 2010 12:59
by sigurdur
Ég út á land :)

Re: Jóla bock frá Ölvisholti?

Posted: 29. Nov 2010 22:49
by olihelgi
Afsakið ruglinginn.

En ég er búinn að næla mér í Jóla bock-inn frá Vífilfelli. Allt í góðu með hann.

En mig vantar Jólabjórinn frá Ölvisholti. Finnst frekar slæmt að vera ekki búinn að tryggja mér eintak af honum. Ef þið rekist á hann í einhverri verslun ÁTVR þá megið þið endilega smella inn pósti hérna inn.

Óli Helgi.

Re: Jóla bock frá Ölvisholti?

Posted: 8. Dec 2010 11:57
by arnilong
Sá hann í Heiðrúnu í gær!

Re: Jóla bock frá Ölvisholti?

Posted: 8. Dec 2010 13:49
by sigurdur
Skv. Valla þá á hann að vera kominn í a.m.k. fjórar verslunir núna (ef ég man rétt frá fundinum).

Re: Jóla bock frá Ölvisholti?

Posted: 8. Dec 2010 15:01
by einarornth
Er kominn með kassa af honum. Langbesti jólabjórinn í ár eins og í fyrra. Ekki eins sterkur og bragðmikill og exportinn, en engu að síður meiriháttar bjór.