Page 1 of 1
Fyrsta AG tilraunin
Posted: 25. Nov 2010 14:16
by Örvar
Sælir.
Nú ætla ég bráðum að fara að græja fyrstu all grain bruggunina og ætla að nota BIAB aðferðina.
Ég er kominn með plast suðupott með hita elementum og hafði hugsað mér að einangra hana lítillega og meskja í henni.
Það eru samt þónokkur atriði sem ég er ekki alveg með á hreinu...
Er í lagi að pokinn með korninu snerti elementin? (Hafði hugsað mér að nota poka úr efnið úr rúmfatalagernum sem einhverjir hér hafa verið að nota)
Eða þarf ég að passa að pokinn nái ekki niður að elementunum og að kornið sé þá ekki í öllu vatninu?
Ég hafði hugsað mér að ná réttum hita á vatninu, setja kornið út í pokann í vatninu og kveikja á elementi til að viðhalda vatnshitanum eftir þörfum.
Það væri flott að fá eitthverjar ábendingar frá ykkur snillingunum og líka ef eitthver lumar á góðu BIAB kennslu vídjói (hef leitað á youtube en ekki fundið neitt sérstakt)
Re: Fyrsta AG tilraunin
Posted: 25. Nov 2010 14:35
by kristfin
einfaldsast er að einangra fötuna vel.
ná hitanum upp í 72 gráður eða svo.
slökkva á elementunum.
pokann útí og kornið í pokann.
hræra vel, vera viss um að engir kornboltar séu til staðar.
loka í smástund, til að hita lokið og allt.
þegar síðan hitinn er kominn í 67 (eða, hvað þig langar að gera), þá bara loka dollunni og bíða í 60-90 mín.
ef það er smá einangrun þá ertu ekki að tapa nema max 1°C per klukkutíma sem skiptir engu máli.
eftir 60/90 mín, lyftiru pokanum aðeins, kyndir upp í 76-78 gráður, slekkur, slakar pokanum ofaní aftur,
bíður í 10 mín.
lyftir pokanum uppúr og lætur drjúpa úr honum ofaní meðan þú ert að ná upp suðu.
þú átt ekki að þurfa vera skerpa á elementunum meðan á meskingu stendur. ef þú hinsvegar telur þig þurfa það þá er mjög hæpið að pokinn lifi af snertihitann. en ef þú prófar það segðu okkur frá

Re: Fyrsta AG tilraunin
Posted: 25. Nov 2010 14:36
by hrafnkell
Ég er með poka úr rúmfatalagernum og element úr rúmfatalagernum í mínu kitti og það nær ekki að brenna né bræða pokann. Ég myndi samt mæla með því að prófa það aðeins áður en þú byrjar að brugga. Bara setja vatn í fötuna, hitann á fullt og troða pokanum að elementi.
Re: Fyrsta AG tilraunin
Posted: 25. Nov 2010 16:14
by sigurdur
Heillaráðin frá mér eru eftirfarandi:
1. Vertu með einangrun á pottinum svo þú þurfir ekki að vera að kveikja á elementunum.
2. Hitaðu vatnið í það hitastig sem að þú þarft (útreiknað en ekki eitthvað fast).
3. Þegar vatnið er tilbúið, settu pokann út í, ýttu pokanum út í alla kanta með meskispaðanum, settu svo kornið í vatnið og hrærðu.
4. Þegar (eða ef) þú hitar vatnið í mash-out, þá er hægt að kveikja á elemenunum og vera bara að "dönka" kornpokanum ofan í.
Gangi þér vel

Re: Fyrsta AG tilraunin
Posted: 25. Nov 2010 17:37
by Örvar
takk fyrir svörin. frábært að geta lært svona mikið hér á síðunni
Ég held ég sleppi þá að kveikja á elementum í meskingunni.
Er að hugsa um að einangra með svampdýnu sem væri þá hægt að vefja bara utan um fötuna þegar þess þarf. Svampurinn er með um helmingi verra einangrunargildi en steinullin en þá slepp eg við að skera út fyrir elementunum og vatnshæðarmælinum utan á fötunni.
Smá heimskulegar spurningar í viðbót sigurður

:
Meskispaði? er bara sleifin? eða eitthvað sérstakt?
og mash-out er það í lok meskingarinnar þegar hitinn er hækkaður um ca. 10°C? er það ekki nauðsynlegt alltaf?
Re: Fyrsta AG tilraunin
Posted: 25. Nov 2010 18:13
by sigurdur
1. Meskispaði er bara orð sem ég nota yfir áhald sem notað er til að hræra í meskingunni. Þetta getur t.d. verið spaði eða skeið.
2. mash-out er þegar hitað er í ~75-76°C til að klára að umbreyta öllum sterkjum í sykur ásamt því að gera virtinn ekki eins seigan. Þetta í raun hjálpar þér að ná meir af sykrum úr korninu. Maður þarf ekki að gera það frekar en maður vill, en ég geri þetta eftir að ég fór í BIAB.
Re: Fyrsta AG tilraunin
Posted: 26. Nov 2010 23:29
by Örvar
ok ég skil.
Nú ætla ég að leggja í þessa uppskrift á morgun:
http://www.fagun.is/viewtopic.php?f=8&t=1269" onclick="window.open(this.href);return false;
en það er eitt sem ég er ekki með á hreinu...
Hversu mikið vatn set ég í suðufötuna til að byrja með? eitthver hluti tapast við meskingu og eitthvað í suðunni.
Er þetta misjafnt eftir uppskriftum hversu mikið vatn tapast í ferlinu eða er það yfirleitt svipað?
Re: Fyrsta AG tilraunin
Posted: 27. Nov 2010 00:52
by sigurdur
Ég reikna yfirleitt með að tæplega 1 líter tapist í 1 kíló af korni, þannig að þú getur gert ráð fyrir því sem almenna reglu. (ég veit ekki hversu mikið aðrir tapa)
Ég geri ráð fyrir að tapa 10-15% í suðu per klukkustund.
Þetta er annars flott uppskrift til að byrja með.