Page 1 of 1

Þvottur á gleri

Posted: 26. May 2009 21:19
by arnilong
Ég fékk notaðan carboy úr gleri um daginn, það var nokkuð um óhreinindi í botninum á honum sem burstinn góði náði ekki nægilega. Hvaða efni eruð þið menn að nota á svona nasty óhreinindi.

Re: Þvottur á gleri

Posted: 26. May 2009 21:25
by Eyvindur
Ég læt hlutina vanalega liggja í klór og sprauta svo vatni af eins miklum krafti og ég get. Helst myndi ég vilja verða mér úti um háþrýstisprautu, en reyndar er hægt að búa til góða carboy sprautu úr koparröri... Það var einhver grein um það í Brew Your Own einhvern tíma...

Re: Þvottur á gleri

Posted: 26. May 2009 23:20
by Andri
Getur keypt drasl í ámunni sem þú setur á krana, setur svo á fullann kraft og ýtir carboyinu á þetta.... hef ekki hugmynd hvað þetta kallast.
http://aman.is/index.php?page=shop.prod ... p&Itemid=1" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Þvottur á gleri

Posted: 26. May 2009 23:27
by Hjalti
Þessi er örugglega ekki nógu stór fyrir carboy, á svona hérna heima sem virkar vel á flöskur, en nær engri drullu úr botninum á þeim samt :)

Re: Þvottur á gleri

Posted: 26. May 2009 23:34
by Andri
Lítill þrýstingur á lögninni?

Re: Þvottur á gleri

Posted: 26. May 2009 23:36
by Hjalti
Venjulegur bara... Nóg til að þrífa bíl :)

Re: Þvottur á gleri

Posted: 26. May 2009 23:42
by Öli
Ég myndi láta í hann sjóðandi heitt vatn og klór. Þarft alls ekki að fylla hann ef óhreinindin eru bara í botninum. Ef þú notar heitt vatn er ráð að hita hann rólega með volgu og síðan heitari vatn - snöggar hitabreytingar geta brotið hvaða gler sem er.

Láta það standa allvegna sólahring. Ég á svona sprautu eins og Andri talar um, nema hvað hún er úr kopar. Hún myndi virka hressilega að ná óhreinindunum úr botninum. Þú getur líka alltaf fengið þér prik og fest á það tusku ef þessi óhreinindi eru svakalega treg.

Muna svo að skola kútinn strax eftir notkun :)

Re: Þvottur á gleri

Posted: 26. May 2009 23:47
by Eyvindur
Já, og svona þykkt gler brotnar enn frekar við snöggar hitabreytingar en þynnra gler, þannig að þú skalt gæta þín á því.

Ég hef einu sinni lent í mjög tregum kút, og þá setti ég bara slöngu ofan í og lét heitt vatn buna stanslaust í tvo tíma, eða svo (byrjaði með það kalt (mjög lengi að hitna hjá mér) og lét það hitna). Það náði megninu og klórinn náði restinni...

Re: Þvottur á gleri

Posted: 26. May 2009 23:55
by Andri
snöggar hitabreytingar geta brotið hvaða gler sem er.
tjah borosilicate gler þolir snöggar hitabreytingar, það er mikið notað í eimingu & meðhöndlun efna á rannsóknarstofum :geek:

Re: Þvottur á gleri

Posted: 27. May 2009 09:12
by Öli
Þetta vissi ég ekki um Borosilicate gler. Takk fyrir það! :)

Fann það út þegar ég var 10 ára gamall hvað skeður þegar maður setur fiskabúrshitara sem er búin að liggja í gangi í svolitla stund ofan í vatn. Krass kúrs í varmafræði og rafmagnsfræði :shock:

Re: Þvottur á gleri

Posted: 27. May 2009 09:53
by Squinchy
Haha var að lenda í þessu með 300w hitarann minn um daginn í vatn skiptum

en ég stór efa að það sé svo gott gler í þessum carboys