Page 1 of 1

Úps smá vandi!

Posted: 26. May 2009 18:30
by nIceguy
Sælir, var að brugga sumarbjórinn minn áðan en klikkaði á að mæla OG áður en ég setti gerið í. Kemur það eitthvað að sök?

Kv

Freyr

Re: Úps smá vandi!

Posted: 26. May 2009 18:51
by Eyvindur
Já, bjórinn þinn er ónýtur. Sendu mér hann svo ég geti fargað honum á viðeigandi hátt.

En í fullri alvöru, þar sem þú ert að brugga extract (ef mér skjátlast ekki) geturðu verið 90% viss um að OG fer ekki langt frá því sem uppskriftin gerir ráð fyrir. Ef það verður eitthvað frávik verður það örugglega ekki meira en 2-3 stig, sem breytir nákvæmlega engu. Þetta er auðvitað að því gefnu að þú hafir ekki sett allt of mikið eða lítið vatn eða eitthvað svoleiðis...

Ef þú værir að gera all grain bjór væri þetta meira mál, en þetta skiptir engu með extract. Miðaðu bara við það OG sem uppskriftin reiknar með og láttu gott heita.

Re: Úps smá vandi!

Posted: 26. May 2009 18:53
by nIceguy
Ok takk, þannig að gerið hefur áhrif? Það ætti þá að auka OG frekar en hitt eða er það bara sykurinn sem mælist?

Re: Úps smá vandi!

Posted: 26. May 2009 18:56
by Eyvindur
Já, nú skil ég. Mældirðu semsagt, en bara eftir að þú settir gerið út í? Það breytir engu, held ég.

Eftir sem áður er bjórinn þinn ónýtur. Best að þú sendir mér hann í förgun.

Re: Úps smá vandi!

Posted: 26. May 2009 19:49
by Stulli
Nei, gerið hefur ekki áhrif

Re: Úps smá vandi!

Posted: 26. May 2009 20:18
by nIceguy
Hehehe ok ég bíð í í nokkrar vikur og tappa á flöskur. Svo sendi ég þér þetta til förgunnar heheh.

Re: Úps smá vandi!

Posted: 26. May 2009 20:20
by Eyvindur
Enn betra... Auðveldara að farga þessu þegar það er komið á flöskur.

Re: Úps smá vandi!

Posted: 26. May 2009 23:26
by Andri
Ég hef góða aðstöðu hérna til að farga áfengi þannig að ég get hjálpað. Endurnýti flöskurnar og allt :fagun:
Ef gerið hefur ekki byrjað að vinna úr sykrunum þá ætti það að vera allt í lagi

Re: Úps smá vandi!

Posted: 26. May 2009 23:43
by Eyvindur
Nei nei, Andri... Aðeins förgunardeildin hefur tilskilin leyfi.

Re: Úps smá vandi!

Posted: 26. May 2009 23:57
by Andri
Ég endurnýti öll efni og skila af mér spilliefnunum á réttann stað, beint í hafið.