Page 1 of 1
Milla, stilling
Posted: 15. Nov 2010 15:43
by Bjössi
Þið sem eru með með
http://www.brouwland.com/en/" onclick="window.open(this.href);return false;
þessa millu að ofan, hafið þið náð að stilla almennilega?
ég er í tómu tjóni með stillingu
ég var oftast umm eða yfir 70% nýtingu þegar ég fékk malað korn en núna um eða undir 60% þegar ég mala sjálfur, er einhver með góða punkta varðandi stillingar?
Re: Milla, stilling
Posted: 15. Nov 2010 16:49
by hrafnkell
Hvað ertu með bilið milli rúllanna stillt á ?
Re: Milla, stilling
Posted: 15. Nov 2010 16:50
by sigurdur
Fáðu þér þreifara (held að þetta sé rétt orð .. feeler gauge á að vera ensku orðin yfir þetta) og mældu bilið. Það er ein af leiðunum til að stilla milluna af rétt.
Re: Milla, stilling
Posted: 15. Nov 2010 22:11
by kristfin
kallað fölerar á íslensku. notað til að stilla kerti og platínur. eða bara pappír, þetta eru nú ekki það mikil vísindi
Re: Milla, stilling
Posted: 16. Nov 2010 10:55
by Bjössi
Hmmm...já hef prófað þetta
man ekki hvað ég var með mikið bil, málið er að nokkur sláttur á bilinu, s.s. er ójafnt
Re: Milla, stilling
Posted: 16. Nov 2010 11:18
by hrafnkell
Ef það er slag á rollerunum, þá er millan líklega ekki góð og erfitt að laga
Re: Milla, stilling
Posted: 16. Nov 2010 11:32
by Bjössi
nákvæmlega, bölv....vesen
kannski er ég einfaldlega ekki að ná réttri herslu
Re: Milla, stilling
Posted: 16. Nov 2010 14:39
by kristfin
það er slag í millunni minni. gamli rennibekkurinn sem ég kemst í er ekki sá besti.
ég hætti hinsvegar að horfa á bilið og frekar á útkomuna. tel mig vera í góðum málum í dag