Page 1 of 1
Hæ ég er glænýr bruggari
Posted: 10. Nov 2010 17:46
by helgibelgi
Sælt veri fólkið
Mér datt allt í einu í hug að ég þyrfti að byrja að brugga bjór, svo ég hljóp út í Ámuna og keypti áhaldasett og Cooper's Draught (svona sýróp) og síðan í Elko og keypti einhvern risastóran pott (þurfti svo lítið að nota hann) hljóp svo heim og henti þessu saman og núna situr mallið inni í skáp frammi á gangi og mér sýnist smá prump vera í gangi.
Ég verð bara einn í þessu en þekki þó nokkra sem hafa fiktað við þetta svo hjálpin er alltaf stutt frá, svo var ég að vonast til þess að læra eitthvað hér líka
Veit ekki alveg hvernig þessi sjálfskynning fer venjulega fram en já:
ég heiti Helgi og ég elska bjór og ætla að verða góður bruggari, ætla að byrja með einföldustu aðferðina og færa mig svo upp erfiðleikastigann eftir því sem ég tel mig geta

Re: Hæ ég er glænýr bruggari
Posted: 10. Nov 2010 18:57
by hrafnkell
Velkominn Helgi
Ekki láta bugast þó sýrópsbjórinn bragðist ekki vel - það verða margir fyrir vonbrigðum þegar þeir smakka á þeim.
Með smá auka fikti er hægt að gera prýðis góðan bjór heima!
Re: Hæ ég er glænýr bruggari
Posted: 10. Nov 2010 22:08
by sigurdur
Sæll Helgi og velkominn.
Ef ég man rétt þá fannst mér fyrsti bjórinn minn (dósabjór) alveg prýðisgóður. Núna geri ég mun betri bjór, en dósabjórinn er prýðisgóður sem fyrsti bjór.
Re: Hæ ég er glænýr bruggari
Posted: 12. Nov 2010 13:18
by kristfin
velkominn helgi.
ef þig langar að verða góður bruggari, ´þá ertu að byrja vel.
þú færð hráefnið hja´hrafnkeli á brew.is. síðan er sigurður alltaf að predikera BIAB aðferðafræðina sem ég ætla að fara taka upp líka. þá ertu með mestu gæði á móti einfaldleika að mínu mat.
Re: Hæ ég er glænýr bruggari
Posted: 13. Nov 2010 14:17
by helgibelgi
Takk fyrir góðar móttökur
Það virðist sem ég hafi gert að minnsta kosti eitthvað rétt um daginn, því núna getur maður séð loftbólurnar fara í gegnum loftsíuna. Gerið er því allavega lifandi og byrjað að éta sykurinn. Ég notaði 1 kg af strásykri, reyndi að gera starter fyrir gerið, það var skrautlegt, en sem betur fer þá drap ég ekki gerið.
Næst langar mig að prófa að sleppa strásykrinum og prófa til dæmis sýróp í staðinn. Vonandi finnst gerinu það vera gott á bragðið
Veit ekki hvort ég ætli að kaupa einhverja humla en geri það kannski ef þið mælið með því.
Læt ykkur svo vita hvernig þetta gengur

Re: Hæ ég er glænýr bruggari
Posted: 2. Dec 2010 21:34
by helgibelgi
Jæja, þetta gekk bara eins og í sögu. Ég stalst í bjórinn eftir að hafa haft hann í 3 daga á flöskum (ég veit að ég er óþekkur!) og ég var hissa á því að það var komið frekar mikið gos í hann þá og hann var ekki alslæmur en samt mjög sætur á bragðið.
Ég hélt svo formlega smökkun fyrir vinina viku eftir þetta (10 dagar í flöskum) og kláraðist bjórinn þá alveg! Ég var mjög hissa á því að hann var orðinn, í sumum flöskum amk, mjög tær, og freyddi eins og alvöru bjór og hélst froðan lengi í glasinu.
Ég verð að segja að ég er mjög ánægður með þessa fyrstu tilraun af heimabruggi.
Núna er ég þegar byrjaður á næstu lögun:
Nota sama kitt: Coopers Draught í dollu
Notaði þó annað ger: Windsor úr ámunni
Nota sýróp í stað sykurs: 1 lítri danskt sýróp úr krónunni
annars bara alveg eins aðferð, náði að búa til myndarlegan starter fyrir gerið.
Læt ykkur vita hvernig þetta gengur!
Re: Hæ ég er glænýr bruggari
Posted: 3. Dec 2010 11:58
by gunnarolis
Gott að heyra að þetta bragðaðist vel.
En það er föst regla hjá mér að smakka bjór á 4. degi eftir að ég set hann á flösku. Það er hluti af innra eftirliti og reglur brugghússins
