Page 1 of 3
SEBrew v2.0
Posted: 10. Nov 2010 10:46
by kristfin
er búinn að vera eyða alltof miklum tíma undanfarið í bruggun og bjórdrykkju. græjur og smíðar hafa alveg setið á hakanum. ég er búinn að rúlla 30+ bjórum í gegnum græjurnar þannig að það er kominn tími á nýjar.
nýja umferðin átti að vera klassísk 3ja laga kerfi, 90l HLT, 50l mash og 50l suða.
þegar ég var búinn að smíða þetta þá datt ég niður á BIAB og sá að það er framtíðin. tekur líka minna pláss og minni tíma. og ef ég þarf að gera eitthvað spes sem hentar ekki BIAB þá bara nota ég gömlu græjurar, síðan á ég þá auka pott með BIAB, get valið milli 50 og 90.
allavega, ég hef verið í helvítis vandræðum með rafmagnið, því þessi fo****g SSr sem ég fékk frá kína virðast vera algert drasl. síðan í ofanálag þá keypti ég of lítil, bara 25A en er samt að reyna ýta þessu af stað, þar sem gömlu græjurnar hafa af miklu leiti verið klipptar niður í varahluti
ég er með sér töflu í skúrnum. þar setti ég 35A öryggi fyrir SeBrew sem er með 4 öryggi, 10A fyrir stýringarnar, 16A fyrir orku til gerjunarstöðvarinnar, 2x25A fyrir stóru elementin.
keyrsla 0: var svona til að stilla draslið saman. var ekkert að stressa mig mikið með kælingu, var með allt opið og gekk bölvanlega að stilla PID. kom í ljós að SSR hitnaði of mikið og hleypti bara endalaust í gegnum sig. bummer.

- sebrew20.jpg (96.51 KiB) Viewed 42171 times
keyrsla 1: lokaði kassanum, SSR á núllið og fasann, 2 viftur til að kæla, hélt að núna mundi þetta nú rokka.
eftir 2ja tíma tilraunir, læstust SSR-in og viðhélt mega suðu. ekki gott. spurning hvort keyrsla 0 hafi steikt SSR

- sebrew21.jpg (98.53 KiB) Viewed 42171 times
keyrsla 2: plönuð í kvöld. helminga SSR á fasann, set núllið á sér öryggi fyrir elementið svo ég geti slegið því út. hvað gæti klikkað.

- sebrew22.jpg (107.46 KiB) Viewed 42171 times
Re: SEBrew v2.0
Posted: 10. Nov 2010 10:57
by sigurdur
hvað gæti klikkað.
Tjahh, allt eftir að þú sagðir þetta ..

Re: SEBrew v2.0
Posted: 10. Nov 2010 11:01
by hrafnkell
Ég var að panta mér 5x 40A SSR um daginn sem hljóta að koma í þessari viku, getur fengið 2stk hjá mér þegar þau koma ef þú vilt skipta gömlu út.
Annars lúkkar þetta spennandi - verður gaman þegar lagnirnar fara að takast

Re: SEBrew v2.0
Posted: 10. Nov 2010 11:31
by kristfin
það væri flott að fá stærri ssr hjá þér hrafnkell. ertu með kæliplötur líka? veistu í hvaða prís þau enda?
síðan, fyrir þá sem hafa efasemdir um hvort maður ætti að vera með SSR bæði á fasanum og núllinu, þá mæli ég með að prófa að bora í kvefað nef og pota síðan sama putta í núllið.
Re: SEBrew v2.0
Posted: 10. Nov 2010 11:44
by anton
Þetta eru vægast sagt spennandi græjur.
Re: SEBrew v2.0
Posted: 10. Nov 2010 11:53
by hrafnkell
kristfin wrote:það væri flott að fá stærri ssr hjá þér hrafnkell. ertu með kæliplötur líka? veistu í hvaða prís þau enda?
síðan, fyrir þá sem hafa efasemdir um hvort maður ætti að vera með SSR bæði á fasanum og núllinu, þá mæli ég með að prófa að bora í kvefað nef og pota síðan sama putta í núllið.
Jebb er með kæliplötur líka. Sendi þér skilaboð með verðinu
Re: SEBrew v2.0
Posted: 10. Nov 2010 12:54
by Braumeister
Ég sé að Speidel mega fara að passa sig...
http://www.speidels-braumeister.de/shop ... ister.html" onclick="window.open(this.href);return false;
þarft bara að skipta út pokanum fyrir rör og bæta við pumpum eða tveim og þá er þetta komið...
Re: SEBrew v2.0
Posted: 10. Nov 2010 14:37
by kristfin
þeir eru með meira svona pólerað þema. ég er meira í frankenstein
Re: SEBrew v2.0
Posted: 10. Nov 2010 21:59
by Bjarki
Glæsilegt hjá þér fyrir utan núlvarið finnst það tilgangslaust, sleppa að bora í nefið ef það er málið

Re: SEBrew v2.0
Posted: 10. Nov 2010 22:10
by sigurdur
Bjarki wrote:Glæsilegt hjá þér fyrir utan núlvarið finnst það tilgangslaust, sleppa að bora í nefið ef það er málið

SSR á núllinu er notað sem vörn ef SSR á fasa klikkar.
Re: SEBrew v2.0
Posted: 10. Nov 2010 22:28
by gunnarolis
Það sem er að er að hitastýringin er á 2116 gráðum. Það er allt of mikill hiti.
Re: SEBrew v2.0
Posted: 10. Nov 2010 23:25
by Bjarki
Átti reyndar við 25A öryggi á núlli finnst það óþarfi þar sem aflið kemur frá fasaleiðaranum en ekki núlleiðara. Væri nær að nota lekaliða eða sambyggt var og lekaliða til að verjast bilun til jarðar.
Er ekki frekar að koma í veg fyrir að SSR klikki með að oflesta ekki stýringu (t.d. nota 40A í 25A rás) og leiða í burtu hita í stað þess að flæka málið með að hliðtengja 2 stk. SSR og tvöfalda hættu á bilun ?
sigurdur wrote:Bjarki wrote:Glæsilegt hjá þér fyrir utan núlvarið finnst það tilgangslaust, sleppa að bora í nefið ef það er málið

SSR á núllinu er notað sem vörn ef SSR á fasa klikkar.
Re: SEBrew v2.0
Posted: 10. Nov 2010 23:41
by sigurdur
Það er rétt hjá þér um öryggi á núlli miðað við að það séu ~230V á fasa en ekki 110V. Mér yfirsást öryggið á núllinu (bjóst við að þú værir að tala um SSR).
Það er líka rétt hjá þér að það ættu að vera stærri SSR miðað við álagið, en ég held að Kristján hafi gert sér grein fyrir því (hrafnkell bauð honum SSR ofar í þræðinum).
Annað sem að má vera til að auka líkur á 'success' er gott hitaleiðnikrem, góð kæliplata og gott loftflæði um loftplöturnar.
Re: SEBrew v2.0
Posted: 11. Nov 2010 09:52
by hrafnkell
Jebb - 40A öryggi hitna ansi mikið við 16A álag, ég mundi ekki alveg bjóða í 25A með sama álagi nema með einhverskonar ofurkælingu, kannski vatnskælingu?

Re: SEBrew v2.0
Posted: 11. Nov 2010 09:54
by kristfin
gærdagskeyrslan byrjaði á því að tengja allt skv. nýjustu útgáfu. fíra síðan upp í strike temp. áður en ég byrjaði ákvað ég að bæta við nettu gaumljósi fyrir strauminn á elementið.

- IMG_3222.jpg (143.53 KiB) Viewed 41418 times
kornið malað ofan í BIAB pokann og allt eins og það átti að vera.

- IMG_3224.jpg (151.08 KiB) Viewed 41418 times
síðan kemur svartur kafli, þar sem stýringin er eitthvað skrítin, slekkur á sér, SSR sleppa straumnum beint í gegnum sig. þegar loks kornið var komið í og allt rétt, þá sé ég hvernig hitinn hríðfellur þar sem yfirborðskælingin er svo mikil. þá var fermingareinangrunardínan frá karrimor vafin utan um pottinn.
þegar kom síðan að partinum þar sem pokinn er hífður upp og hitinn hækkaður í 75 fyrir mash out, þá neitaði stýringin að taka þátt í þessu lengur, kvartaði undan hitamælinum og þjóðfélaginu og bara gafst upp, SSR voru galopin og allt á fullu.
þá vara ekkert að gera nema ná í gamla pottinn og helt úr gula meskikerinu og klárað á gamla mátann.

- IMG_3227.jpg (123.44 KiB) Viewed 41418 times
Re: SEBrew v2.0
Posted: 11. Nov 2010 10:45
by hrafnkell
úff.. Ég hef lent í svona bruggdegi.. Ekkert gengur upp
Var þetta rugl stýringunni að kenna eða relayunum?
Re: SEBrew v2.0
Posted: 11. Nov 2010 10:59
by anton
Allavega, kudos fyrir gaumljósið, það er virkilega nett. Vonandi þá bara að það gangi betur næst!
Re: SEBrew v2.0
Posted: 11. Nov 2010 11:15
by kalli
Ég er ekki viss um að það sé í lagi að hliðtengja tvö SSR. Þau opna ekki samtímis og þá stendur 220V á opnum útgangi á öðru og lokuðum útgangi á hinu. Þetta stendur yfir í einhverjar millisekúndur en geta vel orðið einhver leiðindi úr því.
Re: SEBrew v2.0
Posted: 11. Nov 2010 12:10
by kristfin
ég er ekki viss hversvegna að controlerinn fór í fílu. gleymdi að mæla hvort control straumurinn leiddi saman þegar þau voru í steik.
kannski má ekki hliðtengja SSR, hver veit.
þegar ég fæ nýju fínu SSR frá hrafkeli ætla ég að prófa aftur.
ef það klikkar, þá er ég með annað plan:

- sebrew23.jpg (98.06 KiB) Viewed 41405 times
Re: SEBrew v2.0
Posted: 11. Nov 2010 12:31
by sigurdur
Kristján, ég ætla að gefa eftirfarandi skýra ráðgjöf (aftur) til að þetta heppnist. Þú getur haldið áfram að leika þér að tengja þetta á kross og hlið og whatnot, en hérna kemur ráðgjöfin:
1. Fáðu þér 2x 40A SSR.
2. Fáðu þér 2 góðar kæliplötur fyrir það magn af hita sem þú þarft að losna við. (t.d. á
http://www.power-io.com/products/heatsinks.htm" onclick="window.open(this.href);return false; eða Crydom HE-54
http://cgi.ebay.com/Crydom-HE-54-Relay- ... 1255wt_907" onclick="window.open(this.href);return false; )
3. Settu gott hitaleiðnikrem milli hitaflatar á SSR og kæliplötu, ekki setja of mikið (sama og á örgjörvum).
4. Tengdu sitthvort SSR á núll og fasa.
5. Láttu vera gott loftflæði um kæliplöturnar t.d. með heimasmíðuðum göngum og viftum á sitthvorum endanum.
Samkvæmt
gögnum frá einum framleiðanda SSR kæliplatna og relay'a, þá eru kæliplöturnar sem að fylgja relayum frá kína (ebay) mjög gagnlaus oft fyrir meiri straum en 15A m.v. 25°C ambient.
Það má reyna að fá meiri nýtingu úr þessum kæliplötum með því að nota gott hitaleiðnikrem og hafa góða loftkælingu (blástur) á kæliplötunni.
Það skiptir engu máli hvort að þú ert með PID eða 555 rás sem að stýrir SSRunum, þú þarft að passa að kæla SSRin.
Þú ert að öllum líkindum búinn að skemma SSRin sem að þú átt núna.
Re: SEBrew v2.0
Posted: 11. Nov 2010 12:37
by kristfin
takk fyrir það siggi.
það er planið. ég ætla að bíða eftir SSR frá hrafnkeli, allt annað á að vera komið.
áður en ég fer í næstu umferð ætla ég líka að laga rafkerfið í húsinu. hafa húsið og skúrinn með sitthvorn lekaliðann. ég hef líka verið að vandræðast með rafsuðuna mína, það leysist vonandi líka.
Re: SEBrew v2.0
Posted: 11. Nov 2010 12:39
by hrafnkell
Ég get skrifað undir þetta sem sigurdur segir. Kæliplöturnar sem fylgja kínaSSR hafa dugað mér vel, en það þarf að vera kælikrem (ódýra týpan dugar) og kæliplöturnar verða að vera í opnu rými. Alveg bannað að loka þær í kassa

Lítil vifta á kæliplöturnar hjálpar líka, en hún þarf alls ekki að vera merkileg.
Þetta ætti að redda öllum þínum vandamálum, nema þá hugsanlega ef PID stýringin hefur líka hlotið skaða af þessum æfingum (ólíklegt en líklega ekki ómögulegt)
Re: SEBrew v2.0
Posted: 11. Nov 2010 13:35
by ElliV
Sæll Kristfin
Ég held að megi alveg staðfesta að þetta er flóknasti BIAB búnaður í sólkerfinu.
En vissulega er gott að hafa þetta svolítið sjálfvirkt og það er líka alltaf
gaman að smíða dótið sitt sjálfur.
Varð svolítið hræddur þegar ég sá teikninguna að nágranni minn hér í Kópavoginum væri að smiða kjarnakljúf
Verð að fara að kíkja til þín og skoða græjurnar hjá þér.
Verst að ég mun örugglega öfundast, miðað við minn búnað
Kv Elli
Re: SEBrew v2.0
Posted: 11. Nov 2010 13:43
by kristfin
hrafnkell wrote:Ég get skrifað undir þetta sem sigurdur segir. Kæliplöturnar sem fylgja kínaSSR hafa dugað mér vel, en það þarf að vera kælikrem (ódýra týpan dugar) og kæliplöturnar verða að vera í opnu rými. Alveg bannað að loka þær í kassa

Lítil vifta á kæliplöturnar hjálpar líka, en hún þarf alls ekki að vera merkileg.
Þetta ætti að redda öllum þínum vandamálum, nema þá hugsanlega ef PID stýringin hefur líka hlotið skaða af þessum æfingum (ólíklegt en líklega ekki ómögulegt)
hitinn í kassanum fer ekki yfir 16° C með allt á fullu, það eru 3 viftur í honum. kæliplöturnar eru skrúfaðar með stálvinkli í kassann svo hann kælir líka. SSR eru með kælikrem á milli sín og kæliplötu. ég held bara að 25A kína SSR dugi ekki nema fyrir 10A eða minna og hafi því dáið í fyrstu umferð.
til gamans má nú líka geta þess að þegar ég sló út rafmagninu gær (var að reyna búa til gaumljós úr jólaseríu) þá sá ég að skúrinn er bara á 20A
Re: SEBrew v2.0
Posted: 11. Nov 2010 14:40
by hrafnkell
kristfin wrote:hitinn í kassanum fer ekki yfir 16° C með allt á fullu, það eru 3 viftur í honum. kæliplöturnar eru skrúfaðar með stálvinkli í kassann svo hann kælir líka. SSR eru með kælikrem á milli sín og kæliplötu. ég held bara að 25A kína SSR dugi ekki nema fyrir 10A eða minna og hafi því dáið í fyrstu umferð.
til gamans má nú líka geta þess að þegar ég sló út rafmagninu gær (var að reyna búa til gaumljós úr jólaseríu) þá sá ég að skúrinn er bara á 20A
Ég keyrði 16A í gegnum 25A relay á mánudaginn (er að bíða eftir 40A) og það rétt slapp. Kæliplatan varð helvíti heit. Ég geri ráð fyrir að það hefði verið í lagi með viftu á kæliplötunni, en ég held að það sé rétt hjá þér að 25A relay eru líklega ekki málið fyrir nema svona 10A load nema með active kælingu
