Page 1 of 1

Nóvemberfundur Fágunar, opinn fundur

Posted: 26. Oct 2010 21:10
by sigurdur
Nóvemberfundur verður haldinn mánudaginn 1. nóvember á Vínbarnum kl 20:30.
Þetta er opinn fundur og allir eru velkomnir.

Fundarefni
Almenn umræða
Sigurður Guðbrandsson sýnir BIAB poka og ræðir aðeins um BIAB
Rætt um komandi Górhátíð Fágunar
Athugað hvort fólk vilji dæma bjóra í Górhátíðinni
Bjórsmökkun (fólk kemur með að heiman)
Annað efni

Staðsetning og fundartími
Vínbarinn, 1. nóvember kl 20:30

Vil hvetja alla sem að ætla að mæta að staðfesta mætingu sína sem svar í þræðinum.

Það er ekki búist við mótmælum þennan dag.

Re: Nóvemberfundur Fágunar, opinn fundur

Posted: 26. Oct 2010 22:32
by Bjarki
Ætla að koma og kíkja á saumaskapinn :)

Re: Nóvemberfundur Fágunar, opinn fundur

Posted: 27. Oct 2010 09:26
by arnarb
Mæti pottþétt - spennandi að sjá herlegheitin

Re: Nóvemberfundur Fágunar, opinn fundur

Posted: 27. Oct 2010 09:57
by sigurdur
Ég mun mæta! ;)

Re: Nóvemberfundur Fágunar, opinn fundur

Posted: 27. Oct 2010 17:38
by karlp
ég mun mæta :)

Re: Nóvemberfundur Fágunar, opinn fundur

Posted: 1. Nov 2010 11:33
by ulfar
Ég mæti sæll og glaður

Re: Nóvemberfundur Fágunar, opinn fundur

Posted: 1. Nov 2010 13:58
by gunnarolis
Ég er að gæla við að mæta...

Re: Nóvemberfundur Fágunar, opinn fundur

Posted: 1. Nov 2010 17:40
by Stebbi
Ég mæti og datt í hug að koma með Sankey dót til að sýna ef að einhver hefur áhuga á að fara þá leiðina.
Ef einhverjum vantar far til og frá Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi þá er ekkert mál að taka 1-3 með. Hringja eða SMS i síma 6964405

Re: Nóvemberfundur Fágunar, opinn fundur

Posted: 1. Nov 2010 18:25
by sigurdur
Ég og Úlfar verðum aðeins seinir, komum líklegast rétt fyrir 21:00.

Re: Nóvemberfundur Fágunar, opinn fundur

Posted: 1. Nov 2010 20:41
by sigurdur
Fyrir einhverja ástæðu er Vínbarinn lokaður.
Fundurinn verður haldinn hjá Kristjáni (kristfin).
Ef ykkur vantar að vita staðsetninguna, hafið samband við mig í síma 867-3573.

Re: Nóvemberfundur Fágunar, opinn fundur

Posted: 2. Nov 2010 12:16
by sigurdur
Takk fyrir fundinn. :)

Þetta fannst mér vera mjög skemmtilegur fundur, verst að fleiri gátu ekki mætt.

Re: Nóvemberfundur Fágunar, opinn fundur

Posted: 2. Nov 2010 12:31
by hrafnkell
Þetta var mjög fínt, takk fyrir mig.

Re: Nóvemberfundur Fágunar, opinn fundur

Posted: 2. Nov 2010 22:50
by arnarb
Ég þakka kærlega fyrir mig. Ýmsir áhugaverðir bjórar smakkaðir og að sjálfsögðu í góðum félagsskap.

Það var áhugavert að hlusta á erindi Sigurðar um BIAB. Verður spennandi að smakka afurðirnar sem koma með þessari aðferð.

Re: Nóvemberfundur Fágunar, opinn fundur

Posted: 4. Nov 2010 01:05
by halldor
Kom eitthvað fram varðandi Górhátíðina sem vert er að minnast á?
Ég komst því miður ekki þar sem ég var að skila verkefni með skilafrest á miðnætti á mánudeginum.

Re: Nóvemberfundur Fágunar, opinn fundur

Posted: 4. Nov 2010 01:11
by sigurdur
Það var athugað hvort fólk vildi fá að prófa að dæma bjóra. Það verður boðið þeim sem vilja að láta dæma bjórana sína (anonymous) og þeir sem vilja geta dæmt bjóra. Blöðunum verður svo safnað saman í kassa og blöðin verða svo flokkuð og þeim skilað til þeirra bjóreigenda sem að vildu láta dæma fyrir sig.