Page 1 of 1
Counter flow kæling
Posted: 10. Oct 2010 19:42
by Squinchy
Ég er núna að reyna finna mér íhluti í að búa til 1 eða 2
svona kælingar unit og þar sem ég hef verið að finna 3/8 koparrörið aðeins í 15 metrum, þannig að ég enda örugglega með því að útbúa til tvo svona, þannig að ég er að ská hvort eitthver hafi áhuga á að deila kostnaðinum á þessu með mér
Kem til með að setja inn verð á pörtunum sem ég finn í þetta
Re: Counter flow kæling
Posted: 10. Oct 2010 20:06
by hrafnkell
Ég hefði áhuga

Re: Counter flow kæling
Posted: 10. Oct 2010 20:35
by gunnarolis
Þú getur keypt þessi rör í metravís í Vörukaup í garðabæ. Ég keypti 8m þar.
Re: Counter flow kæling
Posted: 10. Oct 2010 23:06
by Bjarki
Mæli með Efnissölu GE Jóhannssonar Klettagörðum. Getur keypt koparrör í metratali þar, gott verð og frábær þjónusta.
Re: Counter flow kæling
Posted: 11. Oct 2010 13:02
by hrafnkell
Jamm efnissala GE var ódýrari en vörukaup þegar ég var að smíða kælispíralinn minn...
Re: Counter flow kæling
Posted: 11. Oct 2010 13:24
by Squinchy
Okei snilld

, hvar ætli sé hægt að finna slöngu á góðu verði fyrir þetta ?
Re: Counter flow kæling
Posted: 11. Oct 2010 14:07
by sigurdur
Mér hefur fundist garðslöngur vera á svipuðu verði, en mögulega er ódýrast í múrbúðinni. (keypti 25 metra þar á 3000 einhverntímann)
Re: Counter flow kæling
Posted: 12. Oct 2010 00:45
by Squinchy
spurning hvað maður getur sloppið með stuttan kopar í þetta þar sem kalda vatnið okkar er töluvert kaldara heldur en erlendis
Re: Counter flow kæling
Posted: 12. Oct 2010 08:22
by sigurdur
Þegar þú segir það þá átt þú við hvað?
Ísland er ekki kaldasta land í heimi.
Ég færi ekki í minna en 7 metra persónulega.
Re: Counter flow kæling
Posted: 12. Oct 2010 12:14
by Andri
Náttúrulega kaldara hér en í mestallri ameríku þar sem heimabruggveröldin virðist vera stærst
Re: Counter flow kæling
Posted: 12. Oct 2010 12:15
by Andri
Jökull þú ættir að geta reiknað þetta út miðað við flæði & hita á vatninu og yfirborðsflatarmáli. Úr hvaða gráðutölu þú vilt færa þetta niður.
Skal checka á formúlunum á eftir þegar ég finn stóru flottu eðlisfræðibókina mína
Re: Counter flow kæling
Posted: 12. Oct 2010 13:36
by Squinchy
Þá frá 100°c í 20°C
Re: Counter flow kæling
Posted: 12. Oct 2010 18:41
by Andri
Hljóp aðeins á mig með að segja þetta, allt of mikið af faktorum sem hafa áhrif á hitabreytinguna, flæði wortsins, flæði vatnsins, tíminn sem það er í snertingu et cetera et cetera, hef ekki tíma í þetta eins og er, maður er nánast 24/7 í skólanum
Það er hægt að reikna þetta út en meterinn af kopar er ekki það dýr að maður myndi nenna því. Auðveldast bara er að fara í overkill á koparröri og minnka vatnsflæðið til að ná réttri gráðutölu. Athuga kannski hvaða flæði aðrir eru með, bæði á vatni og wort, stærð og lengd koparrörs og byggja þetta á því.
Annars finnst mér counterflow kæling vera eitthvað svo ónauðsynleg. Sumir vilja flækja hlutina haldandi að þeir séu að einfalda þá með því að nota hitastýringu, dælur, tölvustýringu og krebens..
ég geri mér samt alveg grein fyrir því að þetta eru mörg hobbý + alot of spare time að mætast

Re: Counter flow kæling
Posted: 12. Oct 2010 18:49
by kalli
Ég er með 10m af koparröri og það er óþarflega mikið. Virturinn kemur ískaldur út ef ég passa mig ekki. 7m eru alveg nóg og ég gæti trúað að 5m dugi til.
Ég stilli rennslið á kalda vatninu þannig að virturinn komi ca. 20° út. Það næst við sáralítið rennsli á kælivatninu og kælivatnið kemur sjóðandi heitt út.
Re: Counter flow kæling
Posted: 17. Oct 2010 19:44
by OliI
Er þetta ekki eðal varmaskiptir fyrir ykkur sem eruð með hitaveituvatn til að hita meskingarvatnið? Setja kalt vatn í rörið og hitaveituvatn í slönguna. Ætti að stytta suðutímann eitthvað.
Re: Counter flow kæling
Posted: 17. Oct 2010 23:15
by Squinchy
Mikið rétt