Page 1 of 1
Felling.
Posted: 14. Jul 2010 10:30
by raggi
Sælir
Nú er ég búinn að hafa minn fyrsta AG á flöskum í um mánuð.
Hann virðist ekkert falla í flöskunni, það myndast ekkert á botninum og hann er mjög skýjaður. Hefur einhver skýringu á þessu.
Kv
Raggi
Re: Felling.
Posted: 14. Jul 2010 15:02
by Oli
Sæll
Hvaða aðferð notaðir þú til að præma, hvað mikið magn af sykri osfrv og við hvaða hitastig hefurðu geymt flöskurnar síðan þú tappaðir á?
Re: Felling.
Posted: 15. Jul 2010 00:11
by raggi
Ég notaði þessa BIAB aðferð. OG var um 1056 endaði í 1018. Hef verið að geyma þetta á flöskum í 21-24°C
Re: Felling.
Posted: 15. Jul 2010 08:50
by Höddi birkis
sæll, BIAB er brugg aðferð, "priming" er hvernig þú færð kolsýru(gos) í bjórinn, þá setur maður smá sykur í bjórinn þegar þú tappar á flöskur, gerlarnir éta svo sykurinn í flöskuni og mynda kolsýru(gos)..
Re: Felling.
Posted: 15. Jul 2010 11:02
by raggi
Takk fyrir Höddi.

Ég fór eftir einhverri reiknivél á netinu. Var með 19 lítra af bjór og setti um 150 gr af sykri út í. Leysti hann upp í vatni og hellti út í og hrærði svo í.
Re: Felling.
Posted: 15. Jul 2010 11:20
by Eyvindur
Er bjórinn kolsýrður? Ef svo er, drekktu hann þá bara. Ef ekki er þetta eitthvað skrýtið.
Re: Felling.
Posted: 15. Jul 2010 22:04
by sigurdur
Þetta er mjög hátt FG. Varstu að stefna að svona háu FG?
Þetta virðist samt vera vandamál í með gerið (næringarsnautt / lítið súrefni áður en gerjun hófst / sýrustig langt út fyrir mörkin)
Endilega láttu okkur vita hvort að hann sé kolsýrður.
Re: Felling.
Posted: 16. Jul 2010 01:41
by kristfin
getur prófað að taka eina flösku og hafa hana við svona 27-29 gráður í nokkra daga og sjá hvort það sé meiri kolsýra í þeirri flösku eftir. ef svo, þá er gerið sennilega í andnauð og þú þarft að gefa þessu meiri tíma og hita.
Re: Felling.
Posted: 16. Jul 2010 11:50
by raggi
Sælir.
Þegar gerjun hófst þá var hún mjög hröð og virtist klárast á 4-5 dögum. Lét þetta svo standa í nokkra daga til viðbótar.Fleytti svo yfir í annan kút. Eftir það setti ég kútinn í kælir og lét hann vera þar í um viku. Einhverstaðar las ég að gruggið ætti að falla betur í kulda. Nei ég stefndi ekki að svona háu FG , mæling sýndi þetta í 3 daga í röð og þá hélt að gerjun væri lokið. Það er frekar lítil kolsýra í bjórnum.
Ég gerði síðan smá vitleysu varðandi humlana. Þeir voru svolítið lengur í pottinum heldur en ráð var gert, þannig að hann er töluvert beiskur.
Re: Felling.
Posted: 16. Jul 2010 13:08
by sigurdur
Prófaðu að opna eina flösku (bara eina), setja 2-3 korn af þurrgeri, sem þú veist að er í góðu lagi, í flöskuna og lokaðu henni svo aftur.
Geymdu flöskuna einhverstaðar þar sem að hún getur sprungið án þess að skaða nokkurn mann.
Prófaðu svo að opna hana eftir viku ef hún verður ekki sprungin.
Athugaðu að vera með hlífðargleraugu, hanska o.s.frv. þegar þú athugar hana.
Ef allt gengur vel þá veistu að gerið sem að þú notaðir hefur ekki verið við góða heilsu, hvort sem að það sé áður en þú fékkst gerið eða eftir.
Re: Felling.
Posted: 19. Jul 2010 22:22
by raggi
Takk kærlega fyrir svörin, ég prófa þetta.