Page 3 of 3
					
				Re: 2.Pöntun af Brouwland í samstarfi við Vínkjallarann. NÝ 
				Posted: 21. Sep 2011 19:26
				by gunnarolis
				Við verðum væntanlega eitthvað við á morgun að afhenda, annars um helgina og þá heima hjá einhverjum stjórnarmeðlima en ekki í vínkjallaranum sjálfum...
			 
			
					
				Re: 2.Pöntun af Brouwland í samstarfi við Vínkjallarann. NÝ 
				Posted: 22. Sep 2011 08:20
				by gunnarolis
				Það fór slatti af pöntunum í hendurnar á eigendum sínum í gær, en ennþá eru nokkrir sem eiga eftir að sækja. Til þess að minnka viðveru okkar í Vínkjallaranum væri gott að vita hvenær menn hafa tíma til að sækja pantanirnar, og sendi ég því einkaskilaboð á þá sem eiga eftir að sækja pantanirnar.
Athugið, vegna þess að Brouwland átti ekki öll itemin sem voru pöntuð gæti verið að það vanti stakar vörur í pantanir hjá einhverjum, en það er bara eins og gengur og gerist í svona löguðu.
Kv Stjórnin.
			 
			
					
				Re: 2.Pöntun af Brouwland í samstarfi við Vínkjallarann. NÝ 
				Posted: 23. Sep 2011 11:44
				by gunnarolis
				Athugið! Í dag munum við taka kassana úr vínkjallaranum og færa þá annað (að ósk þeirra). Ég mun fara með þetta heim í bílskúrinn og þá verður hægt að ná í þetta þangað (Er líka í Garðabæ, stutt frá vínkjallaranum).
Þannig að þeir sem ná ekki í sendinguna í dag fyrir hálf sex (17:30) í vínkjallarann þurfa að ná í þetta heim til mín.
Sendið einkaskilaboð ef ykkur vantar frekari upplýsingar.
			 
			
					
				Re: 2.Pöntun af Brouwland í samstarfi við Vínkjallarann. NÝ 
				Posted: 26. Sep 2011 20:18
				by gunnarolis
				Minni á að sendingarnar eru komnar í skúrinn hjá mér, og til að nálgast þær getið þið hringt í mig, en til þess að fá símanúmerið mitt þurfið þið að senda mér einkaskilaboð.
Kv Gunnar.