Page 12 of 14
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 23. Aug 2012 15:46
by hrafnkell
Takk fyrir drengir

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 11. Sep 2012 09:40
by hrafnkell
Ný sending af korni komin til landsins, en enn í skipi, ekki víst að ég geti afgreitt úr henni fyrr en eftir helgi.
Ég verð ekkert við 13 og 14 september (fimmtudag og föstudag), þannig að þeim sem vantar hráefni fyrir helgina er bent á að huga að því í fyrra fallinu

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 11. Sep 2012 11:58
by humlarinn
Kíki á þig í dag, þarf að fá startpakkan og eitthvað meira fyrir komandi helgi!!!
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 17. Sep 2012 12:11
by einarornth
Er pilsner maltið mætt úr skipinu?
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 17. Sep 2012 12:27
by hrafnkell
Fæ það afhent í vikunni - á eftir að tolla það og fá það sent hingað í skúrinn.
Fæ einnig centennial humal!
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 19. Sep 2012 12:04
by hrafnkell
Ég var að fá fullt af ohringjum í corny kúta ef einhverjum vantar...

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 24. Sep 2012 01:53
by Squinchy
Áttu eftir að uppfæra lager stöðuna á pilsner eða er það strax búið ?

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 24. Sep 2012 10:45
by hrafnkell
Squinchy wrote:Áttu eftir að uppfæra lager stöðuna á pilsner eða er það strax búið ?

Jamm gleymdi að uppfæra

Redda því fljótlega.
Náði einnig að redda mér 10kg af centennial, sem kom í kornsendingunni!
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 15. Oct 2012 15:27
by hrafnkell
Ég ætla að prófa að vera með opið í skúrnum á miðvikudögum milli 16:30 og 18:30. Ég hvet fólk til að reyna að koma á þessum tíma, en annars er hægt að hringja í mig eins og venjulega.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 15. Oct 2012 16:15
by kari
Á maður að setja inn pöntun á netinu áður?
Eða bara að mæta?
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 15. Oct 2012 16:35
by hrafnkell
kari wrote:Á maður að setja inn pöntun á netinu áður?
Eða bara að mæta?
Ef það á að taka einhvern helling þá borgar sig að panta á undan og láta vita
Ég veit ekkert hvernig traffíkin verður á þessum tíma, en ef það er mikið af fólki og stór pöntun þá gæti það tekið svolítinn tíma.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 15. Oct 2012 18:52
by Classic
Ég er að vinna frameftir á miðvikudaginn, skellirðu nokkuð á mig þótt ég hringi á fimmtudag?

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 15. Oct 2012 19:48
by bergrisi
Líst vel á þetta. Hentar mér mjög vel.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 28. Oct 2012 20:14
by tolvunord
Líst rosalega vel á þessa hugmynd

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 30. Oct 2012 18:00
by hrafnkell
Tapparnir eru komnir afur

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 2. Nov 2012 16:17
by Squinchy
Snilld!, í mismunandi litum ?
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 2. Nov 2012 18:59
by hrafnkell
Jebb 8 litir:
Rauður
Appelsínugulur
Silfur
Gull
Blár
Grænn
Hvítur
Svartur
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 5. Nov 2012 12:41
by hrafnkell
Ég verð ekkert við á fimmtudaginn og föstudaginn, þannig að þeir sem ætla að versla fyrir næstu helgi þurfa að gera það mán,þri eða miðvikudag.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 14. Nov 2012 15:44
by hrafnkell
Pilsner maltið er eiginlega búið hjá mér, en ég er búinn að panta meira, sem ætti að koma eftir um 3 vikur.
Ætti að eiga nóg af öllu öðru þangað til, t.d. pale ale, munich o.fl.
Var einnig að fá joðófór og klórsóda ef einhverjum vantar svoleiðis.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 27. Nov 2012 12:10
by hrafnkell
Vegna persónulegra ástæðna get ég því miður get ég ekki verið við í skúrnum á morgun, miðvikudag. Því færist opnunartíminn til og verður í staðinn opið í skúrnum á fimmtudag milli 16:30 og 18:30.
Athugið að þetta á aðeins við í þessari viku, næsta miðvikudag verður opið eins og venjulega.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 7. Dec 2012 18:57
by hrafnkell
Ný sending af korni komin, nóg til af öllu korni núna.
Á eftir að uppfæra lagerstöðuna á síðunni reyndar, en geri það um helgina.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 15. Dec 2012 21:21
by hrafnkell
Næsti miðvikudagur (19 des) verður seinasti miðvikudagur ársins þar sem verður opið hjá mér. Ég ætla svo að vera í fríi á milli jóla og nýárs, þannig að ef ykkur vantar eitthvað hjá mér, þá er næsta vika klárlega málið

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 3. Jan 2013 16:47
by helgibelgi
Er ekki örugglega til nóg af Pale Malti? Síðan segir mér að þú eigir ekki 25kg af pale ale

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 3. Jan 2013 17:02
by hrafnkell
Ég á um 800kg af pale...

Hef líklega gleymt að uppfæra stöðuna á því eftir seinustu sendingu. Redda því snöggvast.
Edit:
Búinn að laga lagerstöðuna á pale ale. Einnig fékk ég sendingu af hitamælum í dag, fyrir þá sem vantar slíkan.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 3. Jan 2013 17:13
by Proppe
Hvernig hitamælum?
Eru þetta sexí, sexí hitamælar?
Minn er dauður. Aftur.