Page 2 of 2
Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 13. May 2009 20:57
by Stulli
arnilong wrote:Patience young jedi, wait you must.
+1
Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 13. May 2009 22:00
by Andri
Mikið um bið þegar maður er að brugga, þegar gerið er búið að éta sykurinn og breyta í ethanol & co2 þá étur það aukaefnin .. diacetyl og allann viðbjóð sem skapast eins og flestallir vita :p
Ég er að lagera núna og ætla auðvitað að hafa þetta þarna í meiri tíma en talað er um

biðin er hell.. en ég verð vonandi sáttur þegar ég opna fyrstu flöskuna.
Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 13. May 2009 22:19
by Eyvindur
Því lengur sem maður bíður, því betri verður fyrsti sopinn. Það er bæði sálrænt og ekki...
Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 13. May 2009 22:27
by Stulli
Einsog þeir segja:
Síðasta flaskan bragðast alltaf best

Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 13. May 2009 23:51
by arnilong
Stulli wrote:Einsog þeir segja:
Síðasta flaskan bragðast alltaf best

Og þeir ljúga ekki! Ertu ekki annars að tala um hljómsveitina?
Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 14. May 2009 00:01
by Stulli
arnilong wrote:Stulli wrote:Einsog þeir segja:
Síðasta flaskan bragðast alltaf best

Og þeir ljúga ekki! Ertu ekki annars að tala um hljómsveitina?
Uhh, hvaða hljómsveit? Nei ég meina bara að oft eru menn búnir svo fljótt með 20 L af eðal heimabrugguðu öli að síðasta flaskan er mest þroskuð og þ.a.l. best

Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 14. May 2009 00:02
by Eyvindur
Jújú...
Væntanlega er átt við hljómsveitina Þey.
Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 14. May 2009 00:04
by arnilong
Stulli wrote:arnilong wrote:Stulli wrote:Einsog þeir segja:
Síðasta flaskan bragðast alltaf best

Og þeir ljúga ekki! Ertu ekki annars að tala um hljómsveitina?
Uhh, hvaða hljómsveit? Nei ég meina bara að oft eru menn búnir svo fljótt með 20 L af eðal heimabrugguðu öli að síðasta flaskan er mest þroskuð og þ.a.l. best

Nú, hljómsveitin "Þeir", auðvitað Eyvindur. Annars er ég alveg sammála með síðasta bjórinn. Ég er alltaf búinn að hugsa lengi um hann þegar ég læt vaða í hann, það verður alltaf úr því mikil athöfn. Allt verður að vera fullkomið því sá bjór kemur líklega ekki aftur.
Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 14. May 2009 00:05
by Eyvindur
Þeyr... Ekki Þeir...
Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 14. May 2009 00:09
by Stulli
Ég var bara að ítreka mikilvægi þolinmæðis í þessu áhugamáli

Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 14. May 2009 00:10
by arnilong
Aaahh!

Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 14. May 2009 00:11
by Andri
Ég á eitt stykki af fyrsta bjórnum mínum eftir, ég vildi að þeir væru fleiri.
Ég mun drekka hann fimmtudaginn 2. júlí, þá fæ ég að vita hvað ég fæ úr sveinsprófinu. Það verður svakaleg athöfn í kringum það. Mig sárlangar að opna hann núna...
Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 14. May 2009 00:29
by Eyvindur
Ég á ennþá nokkra bjóra úr fyrstu tveimur skömmtunum sem ég gerði. Orðnir rúmlega ársgamlir núna. Eiginlega komnir yfir besta stigið (þeir voru báðir nammi í kringum 9 mánaða aldurinn - og þetta eru bara meðalstórir bjórar).
Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 7. Jun 2009 21:59
by Hjalti
Var að setja þennan á flöskur rétt áðann.
Drakk sýnið sem sýndi FG upp á 1005 og OG var uppá 1050 þannig að ég er með 5.91% áfengismagn í þessu.
Ótrúlega góður bjór og vegur mikið upp fyrir svekkelsið með Oatmeal Stoutinn.
Næst á dagskrá núna er Fuggle IPA sem ég ætla að þurhumla. Meira um hann síðar!
Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 7. Jun 2009 22:33
by arnilong
Nokkuð lág þéttni í lokin, þetta er flott rauðöl hjá þér. Ég er líka mjög spenntur fyrir þessum Fuggle IPA.
Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 7. Jun 2009 22:36
by Hjalti
Hvað táknar það? Að það sé lágt FG?
Segir þetta mér eithvað um hvað var í gangi?
Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 7. Jun 2009 22:51
by arnilong
Nei, það er nú ekkert sem ég sé að því að hafa háa attenuation á gerinu. Bara duglegt ger hjá þér!

Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 7. Jun 2009 22:53
by arnilong
Var hitinn í gerjuninni hár?
Funduð þið Korinna annars eitthvað merkilegt á þessum fyndna KR-markaði í gær?
Annars með þessa lágu FG, þá hef ég engar áhyggjur en það sem ég var eitthvað að spá í áðan var að Írskt rauðöl er yfirleitt með hærri FG. En ég er stundum alltof mikill stílapervert.

Ég held að þetta verði ilmríkur bjór hjá þér!
Re: Jörvi Irish Red Ale
Posted: 7. Jun 2009 22:57
by Hjalti
Hitinn í geymsluni er ca. 18-19 gráður og nei við fundum ekkert nema Sri Lankneskan mat