Page 2 of 2

Re: Hitamælir

Posted: 20. Aug 2009 23:29
by sigurdur
Tjahh .. það þarf ákveðið 'nenn' í það að henda þessu í eitthvað form sem að hægt er að sjá einhverjar nothæfar niðurstöður .. mun frekar að útbúa eitthvað fittings dót og tengja hitanema með prjóni í gegn, útbúa svo Arduino/Freeduino með 7 segment display sem að myndi birta rétta mælingu út frá því ásamt því að fæða gögn í tölvuna til að geta skoðað hvernig hitaþróunin var á þeim tíma sem að hitinn var sem krítískur ...... nokkuð of tæknilegt ennþá (kanski ekki fyrir rafeindavirkja ..)?

Re: Hitamælir

Posted: 21. Aug 2009 10:25
by andrimar
Ég er hvorki rafeindavirki né rafmagnsverkfræðingur, ég veit líka að með smá þolinmæði og google þá hef ég komið mér upp þekkingu til að koma svona upp og finnst það lítið vesen og blátt áfram gaman. Nokkuð líkt og sumir ónefndir(sigurdur) hafa verið að dunda sér við í gerð kornmyllu úr pastavél, sem btw er úber töff verkefni hvernig gengur það annars?

Vinsamlegast ekki afskrá verkefni bara því þú telur það vera of tæknilegt/mikið mál fyrir sjálfan þig. Við höfum allir DIY hæfileika, bara á mismunandi sviðum :)

Re: Hitamælir

Posted: 21. Aug 2009 10:36
by andrimar
Annars er þetta með Arduino'inn mjög góð hugmynd, myndi vissulega auðvelda samsetninguna töluvert þar sem það eru 99% líkur á að e-r hafi áður tengt hitamæli við Arduino og birt gildi á skjá og á hugbúnaðarhliðinni eru örugglega til tilbúnar modúlur til að taka gildi frá mælinum og senda gildi útá skjá.

Hafa e-jir notað og/eða eiga arduino?

P.S. Þetta verkefni hér notast við Arduino clone, mjög töff. BrewTroller

Re: Hitamælir

Posted: 30. Aug 2009 21:56
by kristfin
ég ætlaði nú bara að nota svona ódýran hitamæli sem sýnir úti og inni hitastig. hann er vatnsheldur og eg sóttrheinsa bara snúruna, og smelli henni ofani meskikerið

Re: Hitamælir

Posted: 30. Aug 2009 22:25
by Eyvindur
Þú þarft ekki að sótthreinsa neitt fyrir suðu.

Re: Hitamælir

Posted: 3. Sep 2009 08:38
by lundinn
Mín reynsla er að bestu hitamælarnir eru þessir gömlu góðu (ekki digital). Ég keypti einn góðan í Ámunni (ekki flotmælir), mig minnir að hann hafi kostað um 2000.-kr.

Það er gott ráð þegar verið að velja hitamæli, það er að raða upp 4 – 5 mælum hlið við hlið við sömu hitaaðstæður.
Þeir mælar sem sýna sama hitastig eru líklega réttir.

Re: Hitamælir

Posted: 4. Sep 2009 21:24
by Andri
Eins og Ómar Ragnarsson gengur um með 2 úr á vinstri og eitt á hægri, ef eitt vinstri úrið er á vitlausum tíma þá lítur hann á hægri til að vita hvort þeirra er að feila

Re: Hitamælir

Posted: 12. Sep 2009 15:34
by Idle
Eftir ævintýrið með nafna í gærkvöld, og undanfara þess (kapphlaup við opnunartíma verslana), steingleymdi ég að kaupa mér hitamæli í meskinguna. Nafni fær að setja inn myndir og söguna af handlagni sinni - ég fylgdist bara með, fullur aðdáunar. Svo gleymdi ég þessum þræði, fór í Elko áðan, og keypti mér ódýran, stafrænan kjöthitamæli - einn af þessum með vír og prjóni. Vírinn þolir víst illa vætu, ef marka má það sem fram hefur komið hér. :(

Re: Hitamælir

Posted: 20. Jan 2010 23:02
by mcbain
Kanski IKEA sá einn slíkan á 1200 kall, veit ekkert um hvað hann þolir af raka, en mér dettur í hug það væri hægt að bræða herbi hólka utan um vírinn ef þið kannast við það úr rafmagninu

Re: Hitamælir

Posted: 20. Jan 2010 23:16
by Eyvindur
Ég notaði lengi vel IKEA mæli. Keypti tvo, eyðilagði annan nær samstundis, einmitt af því að það komst gufa inn í vírinn. Tók plastslöngu og teipaði hana utan um vírinn á seinni mælinum, og það hélt honum á lífi. Ég er reyndar hættur að taka sénsinn með hann þangað til ég finn eitthvað öruggara (brúnt límband er ekki það traustverðugasta sem ég veit, enda myndast alltaf móða innan á plastslöngunni). Þannig að ef þú ætlar að nota IKEA mælinn, passaðu þá afskaplega vel upp á vírinn - hann þolir lítið sem ekkert.

Re: Hitamælir

Posted: 21. Jan 2010 11:45
by BeerMeph
Lang áreiðanlegustu hitamælarnir eru viðurkenndir og vel staðlaðir kvikasilfursmælar - þeir hætta eingöngu að virka ef þeir brotna.