Page 2 of 3
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 4. Oct 2013 10:26
by gm-
Leiðinlegt að geta ekki mætt í skúrinn, treysti því að þið skemmtið ykkur vel!
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 4. Oct 2013 10:48
by Eyvindur
Það er viðbúið að þetta verði hrikalega gaman.
Ég gleymdi að taka fram að það er ekki skylda að vera meðlimur til að koma í ferðina, frekar en aðra mánudagsfundi, en þeir sem ekki eru meðlimir þurfa að borga 2.000 kr. í rútuna. Frítt fyrir meðlimi.
Og ég ítreka að við þurfum að vita fyrir 16.00 í dag hverjir ætla að koma í rútuna, til að vita nákvæmlega hvaða stærð við þurfum.
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 4. Oct 2013 17:39
by Eyvindur
Jæja, þetta reyndist óþarfi, þar sem við vorum orðnir of seinir að minnka rútuna. Þannig að það verður hægt að skrá sig í ferðina fram að brottför, nema rútan fyllist.
Ég ítreka að þeir sem eru ekki félagar þurfa að borga 2.000 kr. í rútuna. Meðlimir fá frítt. Ég held að brottför verði upp úr 19.00, en ég þarf að fá það staðfest.
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 5. Oct 2013 16:04
by viddi
Verður stoppað á N1 í Hafnarfirði eins og venjulega? Og þá hvenær?
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 5. Oct 2013 19:56
by Classic
Ætla að stæla síðasta ræðumann og spyrjast fyrir um rúntinn sem rútan tekur. Verður lagt af stað frá BSÍ eins og í Keflavíkurferðinni í fyrra, eða Mjóddinni eins og í Ölvisholtsferðinni? Og ef Mjódd, verðum við komnir í bæinn aftur tímanlega til að ná síðasta Strætó vestur/eða allavega niður í bæ?
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 5. Oct 2013 20:40
by Eyvindur
Hafnarfjarðarstopp er auðvitað lítið mál.
Þar sem bílstjórinn þarf að sækja rútuna í Norðlingaholt er best að við hittumst í Mjódd, held ég. Bara upp á að geta lagt í hann fyrr en seinna (bílstjórinn kemur beint úr vinnu að keyra okkur af góðmennsku sinni).
Mér sýnist að við getum lagt af stað um áttaleytið. Heimför er ekki ákveðin ennþá. Hvenær þurfum við að leggja af stað til baka svo menn geti náð strætóbílum?
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 5. Oct 2013 21:33
by Funkalizer
Þeir sem eiga svo heima í Norðlingaholti...
Geta þeir mætt út á plan hjá G.Tyrfingssyni bara eður ?

Og klukkan hvað þá ?
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 5. Oct 2013 22:09
by Eyvindur
Það hlýtur að ganga. Ég skal láta vita með tímasetninguna.
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 6. Oct 2013 08:27
by hrafnkell
Ohhh það væri svo mikil snilld

Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 7. Oct 2013 11:26
by Heimdallur
Ég mæti
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 7. Oct 2013 14:13
by mattib
Ég mæti og var að fatta að ég er ekki búinn að borga í á, þannig að ég borga í félagið á eftir.
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 7. Oct 2013 14:53
by bergrisi
Búinn að finna glös. Einn kaldur meðan maður gerir klárt.

- 20131007_144123.jpg (147.93 KiB) Viewed 37757 times
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 7. Oct 2013 14:56
by Eyvindur
Glansandi glans!
Þetta verður þá þannig að rútan fer frá Norðlingaholti um 19.45, úr Mjódd 20.00 og úr Hafnarfirði skömmu síðar (miðum við 20.10). Bílstjórinn bað um að fá að sækja okkur frekar í Lækjarskóla en N1, því það er svo lítið plan á N1.
Sjáumst í kvöld!
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 7. Oct 2013 16:23
by elvar
er ekki rétt að mæta ef enn er pláss. þið látið svo mikið með þessa ferð. hef svo sem ekkert sérstakt að taka með. kannski eitthvað berjavín. Mjóddin mun það vera.
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 7. Oct 2013 18:06
by smarivw
Því miður verð ég að draga til baka mína tilmeldingu í ferðina. Svekkjandi að missa af þessu.
Kv. Smári
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 7. Oct 2013 19:01
by Classic
þrátt fyrir nafnið er Mjóddin nokkuð stór.. Hvar á maður að bíða? Strætóbiðstöðinni bara?
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 7. Oct 2013 19:02
by karlp
yes, same place as we waited for the ölvisholt trip.
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 7. Oct 2013 19:05
by Classic
ég var að græja afmælistónleika þesar flestir voru í ölvisholti, svo ég veit ekkert hvar menn fundu bílinn þá, en ég þykist bara vera að bíða eftir Strætó

Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 7. Oct 2013 23:37
by Feðgar
Kærar þakkir, alltaf jafn gaman "at the man cave"
Leitt að hafa þurft að fara svona snemma en maður verður víst að mæta snemma í vinnu líka.
Fullt af góðum bjór og skemmtilegar umræður.
Nú er málið að fara á fullt að plana einhvað helsvert. Er ekki bara ráð að skjóta á 1.200 múrinn næst hehe
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 8. Oct 2013 00:15
by Heimdallur
Takk fyrir skemmtilegan og fróðlegan fund.
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 8. Oct 2013 00:18
by bergrisi
Vil þakka ykkur öllum fyrir komuna. Þetta er með skemmtilegri hópum sem ég fæ í skúrinn. Frábærir bjórar og vonandi eru menn ekki með í maganum eftir að hafa smakkað Kanil-sprengjuna og Öfga IPA bjórinn minn. Ég var svo heppinn að fá að gjöf "Fölva" og er að drekka hann núna. Frábær bjór.
Sama tíma að ári!
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 8. Oct 2013 07:31
by Eyvindur
Takk kærlega fyrir mig. Leitt að geta ekki stoppað lengur (en plúsinn er sá að ég er bara nokkuð hress á leiðinni á fjölskyldufund í leikskólanum hjá yngra afkvæminu).
Þangað til næst!
Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 8. Oct 2013 07:43
by æpíei
Takk fyrir boðið. Þetta var verulega góður fundur í flottri bjórstofu.

Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 8. Oct 2013 08:45
by helgibelgi
Takk fyrir mig

Re: Mánaðar Fundur Oktober - 7 Okt @ KEFLAVIK @ 8:30pm
Posted: 8. Oct 2013 09:40
by flokason
Ég þakka kærlega fyrir mig, mjög skemmtileg heimsókn