Page 2 of 2
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 28. apríl - Keppniskvöldið á KE
Posted: 26. Apr 2012 09:51
by halldor
Feðgar wrote:Ég var að skrá okkur feðgana.
Ef við erum tvískráðir þá biðst ég afökunar á því, man bara ekki hvort ég var búinn að skrá okkur.
Neibb þið eruð bara skráðir einusinni
Hlakka til að sjá ykkur (sem og alla hina)
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 28. apríl - Keppniskvöldið á KE
Posted: 26. Apr 2012 16:44
by gunnarolis
Þetta verður geggjuð keppni ! Endilega mætið sem flestir með bjór til að gefa að smakka, það er sérstaklega gaman að smakka bjórana sem lenda í efstu sætunum, þannig að takið bjórinn með og gefið fólki að smakka vinningsbjórana. Þið fáið líka klapp á bakið fyrir þá

Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 28. apríl - Keppniskvöldið á KE
Posted: 26. Apr 2012 16:47
by karlp
I'll be there for sure. Even competing this year!
I'm just around the corner, so if you want any help with setup, just give me a call
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 28. apríl - Keppniskvöldið á KE
Posted: 26. Apr 2012 19:56
by halldor
karlp wrote:I'll be there for sure. Even competing this year!
I'm just around the corner, so if you want any help with setup, just give me a call
Glæsilegt. Ég á örugglega eftir að heyra í þér á laugardaginn. Ertu til í að senda mér símanúmerið í PM? Það hvarf með gamla símanum mínum.
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 28. apríl - Keppniskvöldið á KE
Posted: 28. Apr 2012 03:44
by halldor
Jæja þá eru dómararnir búnir að dæma forkeppnina og velja 18 bjóra sem komast áfram (6 í hverjum flokki). Mikil leynd hvílir enn yfir því hverjir eru í úrslitum en það verður tilkynnt með pompi og pragt á KEX Laugardagskvöldið 28. apríl, ásamt auðvitað tilkynningu um verðlaunabjórana.
Ég vil svo benda á að Gæðingur IPA var að bætast við í kútabrjálæðið hjá okkur

Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 28. apríl - Keppniskvöldið á KE
Posted: 28. Apr 2012 13:20
by bergrisi
Nokkrir klukkutímar. Er orðinn ofurspenntur og yfirþyrmandi þyrstur.
Hlakka til að eyða kvöldinu í góðum félagsskap.
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 28. apríl - Keppniskvöldið á KE
Posted: 28. Apr 2012 13:27
by helgibelgi
Ég er orðinn of spenntur, get ekki beðið. Því ætla ég að brugga!

Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 28. apríl - Keppniskvöldið á KE
Posted: 28. Apr 2012 15:40
by halldor
helgibelgi wrote:Ég er orðinn of spenntur, get ekki beðið. Því ætla ég að brugga!

Vonandi ekki með triple decoction og 3 klst suðu?
en já það virkar alltaf að brugga til að gleyma

Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 28. apríl - Keppniskvöldið á KE
Posted: 28. Apr 2012 15:48
by halldor
bergrisi wrote:Nokkrir klukkutímar. Er orðinn ofurspenntur og yfirþyrmandi þyrstur.
Hlakka til að eyða kvöldinu í góðum félagsskap.
Þorsta þínum verður svalað innan skamms

Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 28. apríl - Keppniskvöldið á KE
Posted: 28. Apr 2012 16:09
by rdavidsson
Sælir,
Ég er að spá í að mæta ásamt 2-4 öðrum eftir matinn. Þarf ég nokkuð að skrá okkur, mætum við ekki bara á svæðið?
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 28. apríl - Keppniskvöldið á KE
Posted: 28. Apr 2012 16:49
by Birgir Örn
Ég hef e-ð misskilið skráninguna og hélt að ég þyrfti þó svo ég kæmi ekki í matinn. Get afskráð mig í matinn?
Nafnið er Birgir Örn Ragnarsson
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 28. apríl - Keppniskvöldið á KE
Posted: 29. Apr 2012 09:24
by Dabby
Góðann daginn og takk fyrir snilldar kvöld í gær.
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 28. apríl - Keppniskvöldið á KE
Posted: 29. Apr 2012 11:21
by bergrisi
Takk fyrir frábært kvöld.
Er passlega þunnur í dag.
Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 28. apríl - Keppniskvöldið á KE
Posted: 29. Apr 2012 11:31
by AndriTK
Takk fyrir frábært kvöld. Skemmti mér hrikalega vel og alveg að finna fyrir því núna

Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 28. apríl - Keppniskvöldið á KE
Posted: 29. Apr 2012 13:08
by hrafnkell
Takk fyrir kvöldið! Ég er verulega hress í dag, stökk á fætur með börnunum, búinn að fara í hjólatúr og fleira. Það er eins gott að þessi morgunhressleiki verði ekki að timburmönnum í barnaafmælinu sem ég fór í.
Í öðrum fréttum: Ég er hættur að selja plimmó hráefni.

Re: Bjórgerðarkeppni Fágunar 28. apríl - Keppniskvöldið á KE
Posted: 30. Apr 2012 18:50
by Feðgar
Takk kærlega fyrir okkur, þetta var alveg EÐAL