Page 2 of 2

Re: lager gerjun og fl.

Posted: 8. Jan 2012 19:45
by freyr_man69
sælir ég var að spá ég var að profa kutinn í fyrsta skipti um helgina tengdi co2 við og hafði svona 10psi var orðinn ykt spenntur en svo eina sem kom var bara froða ég profaði að láta í nokkur glös hækkaði þrysting uppi alveg 20 eithva og siðan níður í eithvað 2 og allstaðar þar á milli og það kom bara froða veit einhver hver er að ég var að spá hvort það væri nokkuð þetta picnic tap að kenna að það komi bara froða og hvort ég þurfi ekki bara redda mér svona bara venjulegan krana ? eða eithvað annað ?

Re: lager gerjun og fl.

Posted: 8. Jan 2012 20:10
by sigurdur
Þegar það kemur froða, þá er of mikill þrýstingur.
Mundiru eftir að taka þrýstinginn úr kútinum sjálfum? (það er svona "release valve" á þeim)

Re: lager gerjun og fl.

Posted: 8. Jan 2012 20:48
by hrafnkell
Ef þú lækkar þrýsting, þá þarftu að taka þrýstinginn af kútnum, og leyfa honum að koma upp aftur. t.d. ef þú lækkar úr 20 í 10psi, þá er hann enn í 20psi, þangað til að þú hefur tekið hann af og tengt gasið aftur. Hvað er löng slanga á krananum hjá þér?

Re: lager gerjun og fl.

Posted: 9. Jan 2012 00:55
by freyr_man69
ja tóka alltaf gasið af með ventlinum og svo for með hann i það sem eg vildi

Re: lager gerjun og fl.

Posted: 9. Jan 2012 09:58
by kristfin
taktu allan þrýisting af, svo að ekkert kemur út þegar þú opnar picnic kranann.
smá auktu síðan þrýstinginn þangað til að það kemur bjór.

með smá slöngu og picnic krana má ekki vera mikill þrýstingu til að allt freyði út og suður, 2-5 pund gætu dugað, en byrjaðu á 0

Re: lager gerjun og fl.

Posted: 9. Jan 2012 11:31
by freyr_man69
oki profa það en er ekki best bara vera með svona venjulegt tap ?

Re: lager gerjun og fl.

Posted: 9. Jan 2012 12:22
by kristfin
kraninn skiptir litlu máli, bæði picnic og venjulegur tap er fínn.

vandinn er hinsvegar að þegar maður fær svona í hendurnar og ætlar að fara nota. byrjar maður á að googla og þá sér maður að þrýstingur á að vera Xpsi og þá á allt að virka. duh. það er ekki þannig.

þetta er allt háð því hvað slangan er löng, hvað bjórinn er kolsýrður, hver utanaðkomandi þrýstingur er mikill (úr gaskútnum) etc.

í þínu tilviki ertu væntanlega með tilbúinn bjór, sem þú vilt ná í glas. byrjaðu þá á núlli og hækkaðu þangað til að hausinn er réttur

Re: lager gerjun og fl.

Posted: 11. Jan 2012 17:11
by freyr_man69
ahh sáttur kom nuna svona flott og rann vel eins og ég vildi :D en var að spá það er bara smá svona bubblur í bjórnum svo fer bara eftir smá en kolsýran er flott í honum en við hvaða psi ætti ég að halda bjórnum svo að hann haldist svona kolsýrður ?
er með hann í svona 5° og hann var kolsýrður við 14psi og ja hann rann út við eithva 2psi bjóst ekki við svona lágt :D
en með bubblunar verða þær bara flottari þegar ég er búinn að geyma hann i einhvern tima ?