Page 2 of 2
					
				Re: ÖB vefverslun
				Posted: 16. Aug 2010 17:10
				by atax1c
				Takk fyrir að skýra þetta, en þýðir þetta að þið eruð bara hættir þessu eða mun verslunin pottþétt opna aftur ?
			 
			
					
				Re: ÖB vefverslun
				Posted: 20. Aug 2010 16:44
				by BeerMeph
				Spurning um hvort að ölgerðin gæti farið að panta malt fyrir heimabruggara.
Við gætum sagt hvað við vildum og þeir pantað.
Veit allavega að þeir eru með mjög góða innflutninssamninga við eimskip.
En annars veit ég ekki hvort það væri gerlegt fyrir þá og hvað þeir fengu svo sem út úr því   

 
			
					
				Re: ÖB vefverslun
				Posted: 20. Aug 2010 17:35
				by Stebbi
				BeerMeph wrote:En annars veit ég ekki hvort það væri gerlegt fyrir þá og hvað þeir fengu svo sem út úr því   

 
Í þau fáu skipti sem ég hef þurft að hafa samskipti við Ölgerðina og Vífilfell varðandi eitthvað sem tengist heimabruggi þá hef ég fengið það á tilfinninguna að þeir líti á allt brugg sem beina samkeppni við sig.  Í eitt skipti var ég beinlínis spurður hvort ég ætlaði í samkeppni við þá og þá svaraði ég jafn heimskulega og ég var spurður,
 
"Já ég ætla í samkeppni við ykkur og ætla að setja ykkur á hausinn, það munu allir drekka Smeppsí og Þvegils Bull þegar ég er búin".
 
			
					
				Re: ÖB vefverslun
				Posted: 20. Aug 2010 18:04
				by arnarb
				Ég talaði við Ölgerðina varðandi að kaupa af þeim malt en það var ekkert á dagskrá hjá þeim. Þetta var síðasta haust og ég sé ekki að viðhorfið hafi breyst hjá þeim á þessum tíma.