Page 10 of 14
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 18. Mar 2012 11:15
by hrafnkell
Eru byggflögur ekki bara ómaltað bygg, malað?
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 18. Mar 2012 11:28
by sigurdur
hrafnkell wrote:Eru byggflögur ekki bara ómaltað bygg, malað?
Valsað, ekki malað skilst mér.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 18. Mar 2012 13:01
by hrafnkell
sigurdur wrote:hrafnkell wrote:Eru byggflögur ekki bara ómaltað bygg, malað?
Valsað, ekki malað skilst mér.
Hver er munurinn? Nota ekki allir bruggarar valsa til að mala kornið sitt?
Kannski búið að preconditiona það til að það brotni ekki niður eða eitthvað svoleiðis?
Konan keypti svona um daginn til að setja í hafragrautinn hjá krökkunum, þetta leit út alveg eins og malað bygg sem við notum nema það var búið að henda hýðinu. Það var eitthvað íslenskt hollustuvörumerki og var kallað byggflögur.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 18. Mar 2012 17:32
by sigurdur
hrafnkell wrote:Hver er munurinn? Nota ekki allir bruggarar valsa til að mala kornið sitt?
Kannski búið að preconditiona það til að það brotni ekki niður eða eitthvað svoleiðis?
Konan keypti svona um daginn til að setja í hafragrautinn hjá krökkunum, þetta leit út alveg eins og malað bygg sem við notum nema það var búið að henda hýðinu. Það var eitthvað íslenskt hollustuvörumerki og var kallað byggflögur.
Mér skilst að byggflögur eru búnar að fara í gegn um "gelatinization" stigið, sem gerir ensímum auðveldara fyrir að nálgast sterkjuna. Þetta er gert með því að hita byggið með gufu áður en það er valsað (ekki malað).
(nb. ég er ekki 100% viss hvort að það sé búið að fara í það ferli .. það er mismunandi rit)
Ómaltað heilt bygg er ekki búið að fara í gegn um þetta ferli.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 3. Apr 2012 11:52
by hrafnkell
Ég er kominn með solarproject dælurnar í hús. 11 lítrar á mínútu, geta dælt allt að 5 metra upp og nota um 14w. Lítið mál að takmarka flæðið ef manni svo sýnist og hægt að skrúfa upp á 1/2" pípulagnafittings.
Dælurnar kosta 7000kr.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 17. Apr 2012 13:43
by hrafnkell
Smellti BIAB pokum inn á síðuna þar sem fólk spyr reglulega út í þá. Kosta 2.000kr og eru saumaðir af yours truly. Íslenskt handverk!
http://www.brew.is/oc/biabbag" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 17. Apr 2012 19:59
by bergrisi
Fær maður ekki myndir af meistaraverkinu? Vantar á heimasíðuna.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 3. May 2012 12:54
by hrafnkell
Ég var að fá í hús 3500w element með sama watt density og 5500w elementin.
Einnig kom:
Whirfloc töflur
Fjörugrös
Gernæring
5500w element
Eikarkubbar (medium roast)
Nottingham ger
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 3. May 2012 15:48
by kristfin
það sleppur á 16 amper er það ekki. 3500/230 < 16A.
er sami formfactorinn á því og hinu?
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 3. May 2012 15:50
by hrafnkell
kristfin wrote:það sleppur á 16 amper er það ekki. 3500/230 < 16A.
er sami formfactorinn á því og hinu?
Jebb, það var pointið með því að bæta þessum við á lagerinn, til að fólk sem kemst ekki í >16A geti komið sér upp almennilegum græjum
Það er annar formfactor, það er ekki S-laga en er beygt aftur. Sama watt density og efni í því og 5500w elementinu sem er tried and tested

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 4. May 2012 18:02
by Maggi
Ég var að fá í hús 3500w element með sama watt density og 5500w elementin.
Fór á brew.is, sá það ekki þar. Hvurt er verðið?
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 11. May 2012 14:39
by hrafnkell
Maggi wrote:Ég var að fá í hús 3500w element með sama watt density og 5500w elementin.
Fór á brew.is, sá það ekki þar. Hvurt er verðið?
6000kr, sama og á hinum elementunum.
Í öðrum fréttum:
Ég er að undirbúa nýja maltsendingu, ef einhver hefur sérþarfir eða séróskir með malt þá er tíminn núna.
Ég sleppti því að hækka verðið á malti, t.d. pale ale og fleiru í haust, en neyðist til að hækka það núna. Grunnmalt er núna á 7250 sekkurinn. Mér þykir leitt að þurfa að hækka verðið en álagningin var orðin kjánalega lág eftir að innkaupaverðið hækkaði í haust. Ef innkaupaverðin lækka aftur næsta haust þá lækka ég auðvitað aftur - ég hef haft sömu álagningu á korni síðan ég byrjaði með brew.is

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 11. May 2012 22:56
by gugguson
Sæll.
Þú getur bara pantað frá Weyermann er það ekki rétt?
Annars átt þú ekki að vera að afsaka það að halda sæmilegri álagningu - ég held að flestir/allir voni að þú sért að fá eitthvað fyrir þinn snúð að halda þessu úti.

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 15. May 2012 13:26
by hrafnkell
Þessi vika er svolítið skrítin hjá mér þannig að ég get ekki afgreitt neinar pantanir eftir 4. Heads up fyrir þá sem ætla að brugga á fimmtudaginn eða um helgina

Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 15. May 2012 23:16
by kristfin
ef þú gætir reddað mér acidulated malt væri það flott. búinn með mitt.
en ég brúka nú ekki nema svona 2-3 kíló á ári
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 15. May 2012 23:57
by Classic
Ef það væri nú hægt að lauma eins og einum dunk af rauch extract með brettinu án þess að það kosti handlegg og fót (ber þó að geta að sársaukaþröskuldurinn fyrir verði er hærri hjá extractbruggurum en AG) væri það brilliant, mér gengur bölvanlega að finna þetta til sölu online (mögulega er ég samt bara svona lélegur að gúggla)
http://www.weyermann.de/eng/produkte.as ... &sprache=2, síða 3
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 16. May 2012 08:03
by hrafnkell
kristfin wrote:ef þú gætir reddað mér acidulated malt væri það flott. búinn með mitt.
en ég brúka nú ekki nema svona 2-3 kíló á ári
Acidulated malt verður með í pöntuninni, 1kg

Einnig Abbey malt, sem á að vera sambærilegt(ish) við honey malt.
Classic wrote:Ef það væri nú hægt að lauma eins og einum dunk af rauch extract með brettinu án þess að það kosti handlegg og fót (ber þó að geta að sársaukaþröskuldurinn fyrir verði er hærri hjá extractbruggurum en AG) væri það brilliant, mér gengur bölvanlega að finna þetta til sölu online (mögulega er ég samt bara svona lélegur að gúggla)
http://www.weyermann.de/eng/produkte.as ... &sprache=2, síða 3
Ég skal athuga það, en pöntunin og greiðslan fór út í gær, spurning hvort ég geti bætt við.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 16. May 2012 13:16
by hrafnkell
Classic wrote:Ef það væri nú hægt að lauma eins og einum dunk af rauch extract með brettinu án þess að það kosti handlegg og fót (ber þó að geta að sársaukaþröskuldurinn fyrir verði er hærri hjá extractbruggurum en AG) væri það brilliant, mér gengur bölvanlega að finna þetta til sölu online (mögulega er ég samt bara svona lélegur að gúggla)
http://www.weyermann.de/eng/produkte.as ... &sprache=2, síða 3
Get hugsanlega reddað þessu (og hinum malttegundunum frá weyermann) á uþb 7þús. Þarft að láta mig vita asap ef þú vilt eitthvað af þessu.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 19. May 2012 10:39
by hrafnkell
Fyrir þá sem náðu ekki í mig í gær þá verð ég eitthvað við eftir hádegi í dag. Hringið á undan ykkur.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 19. May 2012 17:39
by gugguson
Hrafnkell, ertu að selja kornsykur (dextrose) til að setja á flöskur við töppun?
Ef ekki, eru menn að kaupa slíkt í ámunni eða fæst þetta annarsstaðar?
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 19. May 2012 19:41
by sigurdur
Ég nota strásykur þegar ég set á flöskur.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 19. May 2012 20:27
by hrafnkell
gugguson wrote:Hrafnkell, ertu að selja kornsykur (dextrose) til að setja á flöskur við töppun?
Ef ekki, eru menn að kaupa slíkt í ámunni eða fæst þetta annarsstaðar?
Tóm vitleysa að vera að splæsa í eitthvað annað en bara venjulegan sykur. Ég nota euroshopper sykur þegar ég set á flöskur (sem er orðið ansi sjaldan)
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 19. May 2012 22:33
by gugguson
Eruð þið vissir um að það skili nákvæmlega sömu niðurstöðum?
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 19. May 2012 23:41
by sigurdur
gugguson wrote:Eruð þið vissir um að það skili nákvæmlega sömu niðurstöðum?
Það skilar aldrei nákvæmlega sömu niðurstöðum.
Ég hef hinsvegar aldrei lesið um að prófanir hafa leitt nokkuð annað í ljós en að þetta sé svo óaðskiljanlegt að munurinn sé ógreinanlegur að bragði og lykt(eftir minni).
Ég get hinsvegar vottað það að þú munt ekki greina sykurinn eftir að gerið er búið að gerja sykurinn og taka til eftir sig. Sama hvort þú notar dextrósa eða strásykur í flöskugerjun.
Re: brew.is - Verðskrá á korni, humlum og geri
Posted: 19. May 2012 23:46
by atlios
Hvernig ertu á morgun? Er að fara vestur á ísafjörð á morgun og væri fínt að ná þessu með...