Gasbrennari

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
Post Reply
User avatar
Elli
Villigerill
Posts: 21
Joined: 14. May 2009 17:47

Gasbrennari

Post by Elli »

Sælir

Mér finnst ég alltaf þurfa að bíða svo svakalega lengi eftir suðu þegar við bruggfélagarnir erum að brugga 20-25L blöndur. Hefur einhver af ykkur verið að nota gasbrennara? Er mikill munur á því að nota svoleiðis? Hvar get ég keypt einn slíkan? Hvernig þarf hann að vera og hversu öflugur?

Þegar við byrjuðum að nota wort chiller sparaði hann okkur líklega u.þ.b. 1-2 tíma og ég held að hraðari suða kæmi til með að flýta prósessnum um 30mín -1 klst til viðbótar.

- Elli
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

Re: Gasbrennari

Post by Hjalti »

Spurning um að búa til "heatstick" svona hitaelement úr hraðsuðukatli til þess að hjálpa helluni ykkar.

Ég er með á planinu að búa svoleiðis til. Þarf bara að einangra þetta almennilega og eithvað :)
Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
Elli
Villigerill
Posts: 21
Joined: 14. May 2009 17:47

Re: Gasbrennari

Post by Elli »

Heat stick er góð hugmynd.

Við höfum reyndar notað wort chiller til þess að hita líka, en það hjálpar bara upp í 70-80°C... og það er einmitt frá því hitastigi og upp í 100°C sem tekur lengstan tíma.

Fann leiðbeiningar hér: http://www.cedarcreeknetworks.com/heatstick.htm

Hljómar dálítið sjeikí :shock: en hvað gerir maður ekki í þágu vísindanna ;)
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

Re: Gasbrennari

Post by Hjalti »

Ég er alveg til í að taka þátt í svona tilraun til að smíða þetta í sameiningu.

Ég er með hita elementið heima þannig að það sem mig vantar eur í raun bara pípurnar fyrir þetta.
Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
Andri
Undragerill
Posts: 621
Joined: 5. May 2009 23:56

Re: Gasbrennari

Post by Andri »

Ég er rafvirki þannig að ég ætti að geta hjálpað eitthvað til :)
Mæli með að þið séuð með lekaliða og ekkert annað á greininni ef þið ætlið að vera með stórt heatstick, það þarf 16A öryggi fyrir 3kw heatstick, 10A fyrir 2kw.
I = P/U
Er epoxy food grade efni við þennann hita?
Svo getið þið náttúrulega fengið ykkur thermostat tengt við þetta og stillt hitastigið sem þið viljið að þetta haldi...
Last edited by Andri on 19. May 2009 11:52, edited 1 time in total.
Í gerjun :
Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
User avatar
Stulli
Gáfnagerill
Posts: 246
Joined: 5. May 2009 22:27
Location: 107
Contact:

Re: Gasbrennari

Post by Stulli »

Varðandi brennara, þá nota ég 9,5kW gasbrennara og það er algerlega málið að mínu mati ef að maður hefur aðstöðu til þess. Ég mæli t.d. ekki með því inní eldhúsi eða í stofunni ;)

Ellingsen er með einhverja öfluga brennara og ég man eftir að hafa séð stóra gasbrennara til sölu í Europris síðasta sumar.

Ég kveiki undir brennaranum þegar að ég byrja að sía frá meskingu, þá er komin upp suða um leið, og jafnvel áður en síuninni er lokið :good:
Sturlaugur Jón Björnsson
Bruggmeistari
Borg Brugghús
User avatar
Andri
Undragerill
Posts: 621
Joined: 5. May 2009 23:56

Re: Gasbrennari

Post by Andri »

Svo getið þið gert eins og þetta fólk sem eimar, sjóða heatstickið inn í pottinn og rafmagns tengingarnar að utan.
Í gerjun :
Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

Re: Gasbrennari

Post by Hjalti »

Held að mér lítist best á að hafa svona "hitaprik" :)

Búinn að finna 50L notaðan pott á 14.000 krónur og 35L nýr (3 til) á 17.200 krónur.

Ég held að ég bíði með þetta fram á sumar... þangað til að ég kem heim, mögulega að það séu fleiri svona græjjur dottnar inn hjá þessum fyrirtækjum notað.

Ef einhver vill nálgast þennan 50L þá get ég gefið upplýsingar um hvar hann fæst...
Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

Re: Gasbrennari

Post by Hjalti »

Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Gasbrennari

Post by Oli »

ég er til í að skoða 50 ltr pottinn, kannski fullmikið samt. ;)
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
Stulli
Gáfnagerill
Posts: 246
Joined: 5. May 2009 22:27
Location: 107
Contact:

Re: Gasbrennari

Post by Stulli »

Oli wrote:ég er til í að skoða 50 ltr pottinn, kannski fullmikið samt. ;)
Stærra er betra

Meira er MEIRA :punk:
Sturlaugur Jón Björnsson
Bruggmeistari
Borg Brugghús
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Gasbrennari

Post by Oli »

sammála :clap:
Ég skellti mér bara á 50 lítrana, verður fínn í hafragrautinn á morgnana líka :massi:
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

Re: Gasbrennari

Post by Hjalti »

Góður :)
Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
Elli
Villigerill
Posts: 21
Joined: 14. May 2009 17:47

Re: Gasbrennari

Post by Elli »

Þetta er augljóslega málið. Maður þarf að fjárfesta í svona ef þetta er jafn æðisleg græja og Stulli lýsir... þetta er venjulega að taka amk 30 - 45 mín á hellunni sem við notum.

Það væri líka snilld að hafa thermostat... gæti maður þá jafnvel líka notað þetta til að hækka hitastigið í meskingu? Það er annað sem hefur gengið misvel :) Spurning hvort þetta væri kandídat í eitt workshop eins og Hjalti var að tala um? Þeir sem vilja gera heatstick hittast (og aðrir sem vilja), drekka heimabrugg og drullumixa hitastaf. Ég er sjálfur mjög til... sérstaklega þar sem við höfum mann eins og Andra sem gæti komið í veg fyrir óþægindi og ótímabær dauðsföll sem geta fylgt því að stinga rafbúnaði ofan í vökva :mrgreen:

Góður punktur hjá Andra með epoxy... það epoxy sem ég hef notað um æfina er ekki food grade.

- Elli
Post Reply