Aðalfundur Fágunar 10. febrúar á Hlemmi Square

Upplýsingar um viðburði og tilkynningar frá stjórn Fágunar
Post Reply
MargretAsgerdur
Villigerill
Posts: 41
Joined: 5. May 2015 12:15

Aðalfundur Fágunar 10. febrúar á Hlemmi Square

Post by MargretAsgerdur »

Aðalfundur Fágunar verður haldinn föstudaginn 10. febrúar á bókasafninu á Hlemmi Square klukkan 19:00. Grófa dagskrá má sjá hér að neðan. Við biðjum alla sem ætla að mæta á fundinn að skrá mætingu sína á þennan viðburð fyrir skipulagningu. Léttar veitingar verða á boðstólnum, bæði matur og drykkur.

Framboð í embætti skal bera sem svör við þessum þræði eða á fundinum sjálfum.

Skv. 7. grein laga félagsins þurfa breytingatillögur á lögum að berast minnst 7 dögum fyrir aðalafund, þ.e. fyrir kl. 19:00 þann 3. febrúar.
Breytingatillögur skal leggja fram sem svör í þessum þræði skv. lögum félagsins. Þegar breytingatillögur eru lagðar fram skal tilgreina hvort um nýja grein sé að ræða eða breytingu/viðbót við eldri. Sé lögð fram tillaga um breytingu/viðbót við eldri grein í lögum skal tilgreina númer greinar.
Samþykkt lög Fágunar 2016 má finna hér.

1. Kjör fundarstjóra og ritara.
2. Ársskýrsla stjórnar og umræður.
3. Endurskoðaðir reikningar fyrir hið liðna reikningsár, með athugasemdum skoðunarmanns reikninga, eru lagðir fram til samþykktar.
4. Starf og fjárhagssáætlun lögð fram til umræðu og ákvörðun tekin um hvernig skuli fara með hrat síðasta starfsárs.
5. Árgjald lagt fram til umræðu og samþykktar.
6. Lagabreytingar.
7. Kosningar: kosnir 5 í aðalstjórn. Ennfremur 1 skoðunarmaður reikninga og annar til vara. Kosið er til eins árs eða til næsta aðalfundar.
8. Önnur mál.
9. Nýrri stjórn fagnað.
Fyrrverandi forynja Fágunar
Post Reply