Spurningar um Jóladagatal 2016

Á þessum þræði geta meðlimir spjallborðsins sett fram allt sem tengist gerjun. Ennig spurt spurninga og fengið aðstoð frá öðrum meðlimum.
Post Reply
ALExanderH
Kraftagerill
Posts: 61
Joined: 11. Mar 2015 10:32

Spurningar um Jóladagatal 2016

Post by ALExanderH »

Eigum við ekki að fara að skrá í þetta? Menn verða að fá tíma ef þeir ætla að gera einhvern stóran :)
Ég ætla allavega að vera með - vakti mikla lukku hjá mér síðastu jól!
Dabby
Kraftagerill
Posts: 99
Joined: 14. Feb 2012 09:48

Re: Spurningar um Jóladagatal 2016

Post by Dabby »

Það var allavega byrjað að skrá í þetta í byrjun júlí í fyrra. Þetta var þvílík snilld og ég verð með aftur.
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Spurningar um Jóladagatal 2016

Post by Eyvindur »

Ég er með.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
Örvar
Gáfnagerill
Posts: 172
Joined: 20. Aug 2010 12:11
Location: Hafnarfjörður

Re: Spurningar um Jóladagatal 2016

Post by Örvar »

Ég er til
Sindri
Kraftagerill
Posts: 118
Joined: 9. Mar 2013 11:39

Re: Spurningar um Jóladagatal 2016

Post by Sindri »

Auðvitað verð ég með
Á flösku: Sindness (Guinness clone), Hvítvín & Rauðvín
Á kút: #Yolo v3.5 Imperial stout með eik og koníaki
Í gerjun: Ekkert.....
To do: Alltof mikið.....
Herra Kristinn
Kraftagerill
Posts: 55
Joined: 21. Apr 2015 10:08
Location: Hafnarfjörður

Re: Spurningar um Jóladagatal 2016

Post by Herra Kristinn »

Missti af í fyrra af því ég var of seinn að ákveða mig.

Pantverameðíár!
robertak
Villigerill
Posts: 8
Joined: 16. Nov 2015 14:05

Re: Spurningar um Jóladagatal 2016

Post by robertak »

Ég myndi endilega vilja vera með - verður ekki skráning annarstaðar?
MargretAsgerdur
Villigerill
Posts: 41
Joined: 5. May 2015 12:15

Re: Spurningar um Jóladagatal 2016

Post by MargretAsgerdur »

Það er fundur á þriðjudaginn næsta á Skúla og þar verður tekið við fyrstu skráningum í jóladagatal Fágunar. Við munum halda utan um skipulag á því og fjalla sérstaklega um það á facebook síðunni okkar. Endilega mætiði ef þið viljið vera með í því en eftir fundin opnar fyrir skráningar á netinu.
Fyrrverandi forynja Fágunar
Dabby
Kraftagerill
Posts: 99
Joined: 14. Feb 2012 09:48

Re: Spurningar um Jóladagatal 2016

Post by Dabby »

MargretAsgerdur wrote:Það er fundur á þriðjudaginn næsta á Skúla og þar verður tekið við fyrstu skráningum í jóladagatal Fágunar. Við munum halda utan um skipulag á því og fjalla sérstaklega um það á facebook síðunni okkar. Endilega mætiði ef þið viljið vera með í því en eftir fundin opnar fyrir skráningar á netinu.
Ég ætla að leifa mér að mótmæla þessu og fara fram á að þessi spjallþráður verði notaður til skráningar og utanumhalds. Ef það á að færa þetta yfir á Facebook er engin ástæða lengur til að halda úti þessari heimasíðu þar sem hingað inn koma engar upplýsingar sem skipta máli. Mér þætti synd að drepa þessa síðu með facebook.

Skráning í síðasta jóladagatal var gerð nákvæmlega svona, með pósti sem kom frá almennum félgasmanni á sama tíma ársins og Stjórn verður að færa rök fyrir því að gera þetta öðruvísi í ár.

Hvað gerist ef 40 manns mæta á næsta mánaðarfund til að skrá sig? Heimasíðan sýnir allavega í hvaða röð menn skrá sig á sanngjarnann hátt og skráning hér ýtir undir mikilvægi heimasíðunnar fyrir félagið. Auk þess sem fólk í sumarfríi og utan að landi hefur sama möguleika og aðrir á að fara á heimasíðuna, en ekki til að mæta á mánaðarfund á þriðjudegi um miðjann júlí. Þetta lyktar eins og Stjórnin ætli að handvelja hverjir fá að taka þátt.

Ég ætla ekki að fara að rífast um þetta, bara koma mínum mótmælum á framfæri. Ef Stjórn tekur ekki tillit til þeirra er það þeirra ákvörðun og verður líklega til þess að ég fæ ekki að vera með. Ég kem ekki til með að svara athugasemdum við þessa færslu.

Kveðja
Fúli kallinn
MargretAsgerdur
Villigerill
Posts: 41
Joined: 5. May 2015 12:15

Re: Spurningar um Jóladagatal 2016

Post by MargretAsgerdur »

Dabby wrote: Ég ætla að leifa mér að mótmæla þessu og fara fram á að þessi spjallþráður verði notaður til skráningar og utanumhalds. Ef það á að færa þetta yfir á Facebook er engin ástæða lengur til að halda úti þessari heimasíðu þar sem hingað inn koma engar upplýsingar sem skipta máli. Mér þætti synd að drepa þessa síðu með facebook.
Ég var ekki að meina að við ætluðum að setja tilkynninguna á facebook, heldur að gera eins og í fyrra og setja mynd af hverjum bjór og tengja við uppskriftinar hér á síðunni sem flestir, ef ekki allir, létu fylgja með. Ég hugsaði ekki út í að þetta gæti hljómað öðruvísi en fattaði það um leið og ég las frá þér! :)
Dabby wrote: Hvað gerist ef 40 manns mæta á næsta mánaðarfund til að skrá sig? Heimasíðan sýnir allavega í hvaða röð menn skrá sig á sanngjarnann hátt og skráning hér ýtir undir mikilvægi heimasíðunnar fyrir félagið. Auk þess sem fólk í sumarfríi og utan að landi hefur sama möguleika og aðrir á að fara á heimasíðuna, en ekki til að mæta á mánaðarfund á þriðjudegi um miðjann júlí. Þetta lyktar eins og Stjórnin ætli að handvelja hverjir fá að taka þátt.

Skráning í síðasta jóladagatal var gerð nákvæmlega svona, með pósti sem kom frá almennum félgasmanni á sama tíma ársins og Stjórn verður að færa rök fyrir því að gera þetta öðruvísi í ár.
Það að hefja skráninguna á fundinum sjálfum átti í raun að vera beint framhald af umræðu um hvernig meðlimir Fágunar vildu hafa dagatalið. Einnig ætlaði stjórnin að funda um dagatalið fyrir fundinn varðandi umgjörð og fleira skemmtilegt í tengslum við dagatalið. Auðvitað er þetta líka leið til að hala fleirri inn á fundinn sem hafa skoðun á dagatalinu en við tökum að sjálfsögðu til greina allar skoðanir þrátt fyrir að einhverjir komast ekki á fundin. Ég verð þó að viðurkenna að ég hafði ekki hugsað út í það að þetta væri ósanngjarnt gagnvart þeim sem væru ekki á staðnum þannig að það verður að sjálfsögðu tekið tillit til þess.

Eins og ég nefndi þá á stjórnin eftir að funda betur um dagatalið. En það er rétt að dagatalið var gert nákvæmlega svona í fyrra, með pósti frá félagsmanni. Frábært framtak og því tók stjórnin í fyrra sig til og fékk sal til að halda skiptin. Á skiptunum sjálfum var auðvitað ágætis hópur af fólki og því hugsuðum við að gaman væri að nýta tækifærið í ár og gera eitthvað meira en að skiptast á bjór. Við áttum eftir að taka umræðu um hvað ætti að gera og vorum einnig með einhverjar vangaveltur með að breyta sniðinu á dagatalinu sjálfu, þó ekki mikið. Markmiðið er þó alltaf að allir komist að og vorum við alltaf að gera ráð fyrir að safnast myndi í tvö dagatöl og ætlum alls ekki að handvelja einhverja nokkra í dagatalið.
Fyrrverandi forynja Fágunar
User avatar
æpíei
Undragerill
Posts: 825
Joined: 14. Dec 2012 21:46

Re: Spurningar um Jóladagatal 2016

Post by æpíei »

Við erum að útbúa skráningarform sem allir geta notað, skráð sig í dagatalið, valið dag og séð lista yfir skráða. Hugmyndin er að opna fyrir það bráðlega. Tíminn verður kynntur rækilega fyrirfram svo allir hafi sama möguleika á að skrá sig. Ætli þetta liggi ekki allt fyrir í kvöld á fundinum.
User avatar
æpíei
Undragerill
Posts: 825
Joined: 14. Dec 2012 21:46

Re: Spurningar um Jóladagatal 2016

Post by æpíei »

Skráning er hafin hér http://fagun.is/viewtopic.php?f=25&t=3810

Við ákváðum að takmarka ekki fjölda sem allir geta skráð sig. En fyrstur kemur, fyrstur fær að velja sér dag. Þetta er allar nánar útlistað í þræðinum sem vísað er í.
Post Reply