Ég er að flytja og þarf að minnka umfangið á brugginu aðeins. En þú getur grætt á því, því ég þarf að koma stóru græjunum mínum í verð.
Ég er með 72l pott með glænýju 5500W elementi (skipti um það og hef bruggað tvisvar síðan), fölskum botni og 1/2" krana. Potturinn er eins og sá sem kostar 35.000 hjá Kela. Falski botninn var keyptur fyrir rúmlega ári, sérsniðinn í pottinn. 3mm ryðfrí gataplata. Kostaði 12.000 ný. Með þessu fylgir sérstyrktur, sérsniðinn poki og ef áhugi er fyrir því getur trissan sem ég hef notað til að lyfta pokanum upp úr eftir meskingu fylgt í kaupbæti.
Það eru tvö göt á lokinu - annað til að leiða hringrás úr dælu aftur ofan í pottinn, og hitt fyrir diptube, ef maður vill mæla hitastigið í miðri meskingunni. Ég get selt diptubið með fyrir slikk, ef áhugi er fyrir hendi. Ef þú vilt ekki hafa götin er lítið mál að loka þeim.
Verð: 42.000 isk.
Ég get líka selt með þessu hulsur og klær sem ég hef notað til að tengja með, og jafnvel 32A öryggi, ef svoleiðis vantar í töfluna hjá þér. Segjum 5.000 kall fyrir tengidótið og 5.000 fyrir öryggið.