Þetta er verkefni sem við félagarnir erum búnir að vera að vinna í undanfarnar vikur.
Gerjun.is er staður þar sem nýliðar geta lært til um bruggun. Planið er að fólk sem villist inn á síðuna geti lært allt sem það þarf til að geta bruggað góðan bjór (og mjöð, og vín og alles).
Síðan er tómleg eins og er. Aðeins örfáar uppskriftir og smá kennsluefni komið inn. Hins vegar er fyrsta myndbandið okkar komið inn á síðuna (sjá hér). Planið er að koma með nýtt efni reglulega, þannig að fylgist með!
Jájá Pokabrugg hljómar ekkert svo illa.... En plís ekki fara að ÍSLENZKA allt!
Á flösku: Sindness (Guinness clone), Hvítvín & Rauðvín
Á kút: #Yolo v3.5 Imperial stout með eik og koníaki
Í gerjun: Ekkert.....
To do: Alltof mikið.....
Ég er að búa til "orðabók" yfir alls konar heiti og orð sem notuð eru í brugginu sem ég ætla að setja á síðuna. Kannski maður skelli inn BIP þar inn? annars er ég einmitt kominn á þá skoðun að það þarf ekki að íslenzka allt og þegar maður reynir það getur það endað mjög kjánalega, en er samt gaman!
Var einmitt að henda fyrsta smakki af þessum í ísskápinn áðan
Á flösku: Sindness (Guinness clone), Hvítvín & Rauðvín
Á kút: #Yolo v3.5 Imperial stout með eik og koníaki
Í gerjun: Ekkert.....
To do: Alltof mikið.....
Hann kom nokkuð vel út. Fyrir utan að hann hélt ekki haus lengi. bara búinn að vera á flösku í 9 daga. Geymi næsta smakk þangið til að hann er búinn að vera mánuð.
Á flösku: Sindness (Guinness clone), Hvítvín & Rauðvín
Á kút: #Yolo v3.5 Imperial stout með eik og koníaki
Í gerjun: Ekkert.....
To do: Alltof mikið.....
Vorum að henda inn samantekt um mjöð. Þetta er langmest sama efni og var í mjaðarskjalinu sem ég henti hingað inn ekki fyrir löngu. Ef þú misstir af því skaltu tékka á þessu.
Við vorum að henda inn grein um BrewPi gerjunarstýringu. Þetta er nýjasta viðbótin í bruggkjallaranum mínum. Þetta er tilvalið verkefni fyrir þá sem hafa gaman að því að smíða eitthvað sjálfir. Þeir sem eru flinkir á rafmagn og forritun ættu að geta hent þessu saman auðveldlega. Hins vegar tókst mér, sem kann ekkert á rafmagn og litla sem enga forritun, að setja þetta saman með tiltölulega lítilli fyrirhöfn.
Á flösku: Sindness (Guinness clone), Hvítvín & Rauðvín
Á kút: #Yolo v3.5 Imperial stout með eik og koníaki
Í gerjun: Ekkert.....
To do: Alltof mikið.....
Við vorum að henda inn grein um BrewPi gerjunarstýringu. Þetta er nýjasta viðbótin í bruggkjallaranum mínum. Þetta er tilvalið verkefni fyrir þá sem hafa gaman að því að smíða eitthvað sjálfir. Þeir sem eru flinkir á rafmagn og forritun ættu að geta hent þessu saman auðveldlega. Hins vegar tókst mér, sem kann ekkert á rafmagn og litla sem enga forritun, að setja þetta saman með tiltölulega lítilli fyrirhöfn.
Þetta er virkilega flott! Sá einmitt annan þráð með einn svona DIY BrewPi en var búinn að ákveða að þetta væri of krefjandi fyrir mann eins og mig sem ekkert kann á rafmagn! Þannig að núna hef ég enga afsökun!
Við vorum að henda inn nýjum þætti og grein á síðuna okkar. Við förum létt yfir þrjár gerðir af brugggræjum og útskýrum hvernig þær virka. Þetta er bara svona til að gefa hugmyndir um hvað er hægt að gera (en það er hægt að gera svo miklu meira). Ef þú ert að spá í að byrja að brugga eða að hugsa um breytingar í græjunum þínum veitir þetta vonandi innblástur.