Hafðu samt í huga að hraðsuðuelement eru líka ryðfrí .. þó sum séu verri en önnur.
Ryðfrítt þýðir ekki endilega ryðfrítt stál .. getur líka þýtt króm eða zink húð .. :/
Já ég veit.
Það sem ég vildi meina er að húsið á Camco elementunum er ekki úr ryðfríu efni. Nú veit ég ekki hvaða stál/húð er notað í húsið en það tærist auðveldlega við réttar aðstæður. Sjálfar stangirnar eru úr Inconel (nickel/króm) sem er mjög ryðvarið efni. Sorry Feðgar fyrir að ræna þræðinum.
Ekkert að afsaka.
Ekkert gaman að vera að pósta einhverju sem ekki skapar umræðu. Auk þess þá eru menn að velta fyrir sér kostum og göllum, sem er auðvitað nauðsynlegt
Smá pæling með blöðkurnar á hrærunni, er mikil pæling á bakvið hvernig þær eru mótaðar uppá að velta korninu sem mest?
Geturu sett inn mynd af þeim þar sem sést hvernig þær eru beygðar?
Næst: Jólaöl, ipa, Robust Porter í gerjun: IPA, Dubbel á kútum: Blóðbergur, sænskur IPA, amber
Nei það er svo sem ekkert djúp pæling á bak við það hvernig þær eru mótaðar. Fyrsta útgáfan virkaði ekki og því var ákveðið að gera þær svona.
Lögunin réðst mest af því hvernig þær festust á öxullinn og hugmynd um það hvernig þær kæmu til með að virka. Sú hugmynd reyndist svo rétt, þær gera akkurat það sem þær áttu að gera.
Ég man ekki til þess að það sé til mynd af þeim einum og sér. Ef ég man þá skal ég taka mynd af þeim næst þegar við erum í skúrnum.
Funkalizer wrote:Gátuð þið keypt March dæluna hérna heima eða þurftuð þið að panta hana að utan?
Er dæluhúsið á henni úr stáli eða úr plasti?
Hún er ekki CE merkt og því ekki hægt að selja hérna.. Believe me, I've tried Ég veit um marga sem hafa pantað hana að utan, en ég veit líka um nokkra sem fengu hana ekki afhenta í tollinum því hún er ekki CE merkt.