Gaudeamus hátíðaröl (Double IPA)
Posted: 5. Jun 2015 00:28
Þegar ég byrjaði að brugga tók ég brúðkaupsöl Úlfars og mótaði yfir í eigin uppskrift að APA undir nafninu Apaspil og sló ég þar í gegn strax í annarri eða þriðju tilraun. Sömu innihaldsefni voru seinna notuð til að búa til IPA undir nafninu Silfurbakur sem að margra mati er minn besti bjór til þessa. Sennilega má finna báðar uppskriftir víða á spjallinu, en þær eru báðar saman í þræði hér
Þegar svo vantaði hátíðaröl fyrir hátíðlegt tækifæri var sú þróun tekið annað skref upp á við upp í Double IPA. Þessi var smakkaður á Mikkeler á mánudaginn við góðar undirtektir. Ég deildi víst aldrei uppskriftinni (aðallega af því ég gleymdi því.. og gleymdi því svo aftur í nokkra daga eftir að ég var minntur á það á fundinum), en vegna fjölda áskorana þá kemur hún hér:
Hann fór ekki alveg svona hátt upp í gravity eins og stendur þarna, mögulega af því það fór of mikið vatn í skolunina (ég meskjaði hann með dunk sparge eins og ég geri gjarnan ef OG er reiknað mikið yfir 70 til að fá viðunandi uppskeru í flöskum talið þó ég sé bara með startpakkaplasttunnu til að meskja og sjóða), allavega setti ég 8,5% á miðann en ekki 9 eins og útreikningar stefndu í. Hættulega auðdrekkanlegur fyrir því, enda beiskjunni stillt í hóf en bakgrunnurinn í sætari kantinum fyrir stílinn. Miðinn er hannaður með tilefnið í huga, en í þessum var skálað í útskriftarveislunni minni á dögunum. Áfengisprósentunnar vegna fékk hann samt ekki stóra feisingu í ísskápnum í partíinu svo maður á nóg eftir inn í sumarið.
Þegar svo vantaði hátíðaröl fyrir hátíðlegt tækifæri var sú þróun tekið annað skref upp á við upp í Double IPA. Þessi var smakkaður á Mikkeler á mánudaginn við góðar undirtektir. Ég deildi víst aldrei uppskriftinni (aðallega af því ég gleymdi því.. og gleymdi því svo aftur í nokkra daga eftir að ég var minntur á það á fundinum), en vegna fjölda áskorana þá kemur hún hér:
Code: Select all
Gaudeamus - Imperial IPA
================================================================================
Batch Size: 21,000 L
Boil Size: 25,000 L
Boil Time: 60,000 min
Efficiency: 75%
OG: 1,086
FG: 1,017
ABV: 9,0%
Bitterness: 99,7 IBUs (Tinseth)
Color: 11 SRM (Morey)
Fermentables
================================================================================
Name Type Amount Mashed Late Yield Color
Munich Malt Grain 3,000 kg Yes No 80% 9 L
Weyermann - Pale Ale Malt Grain 5,000 kg Yes No 80% 3 L
Cara-Pils/Dextrine Grain 200,000 g No No 72% 2 L
Total grain: 8,200 kg
Hops
================================================================================
Name Alpha Amount Use Time Form IBU
Simcoe 13,1% 10,000 g First Wort 90,000 min Pellet 11,4
Cascade 9,3% 10,000 g First Wort 90,000 min Pellet 8,1
Simcoe 13,1% 20,000 g Boil 60,000 min Pellet 20,8
Cascade 9,3% 20,000 g Boil 60,000 min Pellet 14,8
Simcoe 13,1% 20,000 g Boil 20,000 min Pellet 12,6
Cascade 9,3% 20,000 g Boil 20,000 min Pellet 8,9
Simcoe 13,1% 20,000 g Boil 15,000 min Pellet 10,3
Cascade 9,3% 20,000 g Boil 10,000 min Pellet 5,3
Simcoe 13,1% 21,000 g Boil 5,000 min Pellet 4,3
Cascade 9,3% 21,000 g Boil 5,000 min Pellet 3,1
Simcoe 13,1% 25,000 g Boil 0,000 s Pellet 0,0
Cascade 9,3% 25,000 g Boil 0,000 s Pellet 0,0
Simcoe 13,1% 20,000 g Dry Hop 14,000 day Pellet 0,0
Cascade 9,3% 20,000 g Dry Hop 14,000 day Pellet 0,0
Yeast
================================================================================
Name Type Form Amount Stage
Safale S-05 Ale Dry 11,000 g Primary