Citra wit/saison

Leyfið spjallverjum að fylgjast með því sem þú ert að gerja. Skrifaðu lýsingu fyrir og eftir gerjun til að sýna okkur hvað hægt er að gera og hverju þið lendið í.
Post Reply
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Citra wit/saison

Post by Eyvindur »

Ég er búinn að stefna að því um nokkurt skeið að gera tvo hveitibjóra úr sömu lögun - gerja sumsé helminginn með T-58 og hinn með WB-06. Þegar á hólminn var komið átti Hrafnkell svo ekki til WB-06, þannig að ég ákvað í flippi að kaupa Belle Saison í staðinn. Henti saman basic wit uppskrift, nema ákvað að nota Citra humla (undir áhrifum frá Sólveigu). Þetta er léttur bjór, með lágt IBU, en verður bragð og lyktarbomba. Ekta sumarbjór.

Ég tók protein rest í 45°C í hálftíma. Meskingin var 90 mínútur í 67°C. Mashout í 75°C í ° 10 mínútur.

Þegar ég var búinn að sjóða í ca. 90 mínútur (skeiðklukkan í símanum slökkti á sér miðja vegu, svo ég þurfti pínu að giska á tímann) var gravity aðeins of lágt, svo ég ákvað að sjóða aðeins lengur. Ekkert víst að þetta klikki.

Hér er uppskriftin:

Code: Select all

4,00 kg               Pilsner (Weyermann) (3,3 EBC)            Grain         5        44,4 %        
4,00 kg               Wheat Malt, Pale (Weyermann) (3,9 EBC)   Grain         6        44,4 %        
1,00 kg               Oats, Flaked (2,0 EBC)                   Grain         7        11,1 %        
50,00 g               Citra [12,50 %] - First Wort 5,0 min     Hop           8        9,4 IBUs      
50,00 g               Citra [12,50 %] - Steep/Whirlpool  10,0  Hop           9        7,8 IBUs      
100,00 g              Citra [12,00 %] - Dry Hop 0,0 Days       Hop           10       0,0 IBUs      

Það verður mjög spennandi að sjá hvernig þetta kemur út.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Citra wit/saison

Post by Eyvindur »

Stefni á að henda þessum á kút í kvöld (ef mér tekst að tæma kút). Tók flotvogarsýni af saison hlutanum. Hann virðist hafa endað mjög nálægt 1.000 (mögulega 1.001). Bragðast sæmilega - verður án nokkurs vafa æðislegur með kolsýru.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
æpíei
Undragerill
Posts: 825
Joined: 14. Dec 2012 21:46

Re: Citra wit/saison

Post by æpíei »

Ég get ekki séð hvernig þessi ætti að klikka :)
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Citra wit/saison

Post by Eyvindur »

Úff. Saison helmingurinn er dýrðlegur. Yndislegur sumarbjór (að vísu 6%, sem er aðeins sterkara en mér finnst best í sumarsvaladrykkjum). Citra bragðið og ilmurinn fer yndislega saman við kryddkeiminn úr gerinu. Temmilega mikil sýra, rennur mjög ljúft niður.

Wit hlutinn fór á gas áðan. Hlakka til að smakka hann kolsýrðan.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
Post Reply