Leyfið spjallverjum að fylgjast með því sem þú ert að gerja. Skrifaðu lýsingu fyrir og eftir gerjun til að sýna okkur hvað hægt er að gera og hverju þið lendið í.
Smellti í þennan á föstudaginn, er í ætt við rauðöl vesturstrandarinnar, maltið í forgrunn en vel humlað samt sem áður. Hafði bjórinn Tall Poppy frá 8 Wired í Nýja Sjálandi sem fyrirmynd, átti samt ekki Simcoe, svo ég notaði Citra í staðinn.
Recipe Specifications
--------------------------
Boil Size: 7.26 gal
Post Boil Volume: 6.76 gal
Batch Size (fermenter): 6.25 gal
Bottling Volume: 6.00 gal
Estimated Color: 17.0 SRM
Estimated IBU: 60.2 IBUs
OG 1.071
Ingredients:
------------
Amt Name Type # %/IBU
5.00 kg Pale Malt (2 Row) US (2.0 SRM) Grain 1 68.0 %
0.55 kg Caramel/Crystal Malt -120L (120.0 SRM) Grain 2 7.5 %
0.55 kg Munich Malt (9.0 SRM) Grain 3 7.5 %
0.50 kg Carafoam (2.0 SRM) Grain 4 6.8 %
0.50 kg Caramel/Crystal Malt - 40L (40.0 SRM) Grain 5 6.8 %
0.25 kg Wheat Malt, Bel (2.0 SRM) Grain 6 3.4 %
30.00 g Nugget [13.00 %] - Boil 60.0 min Hop 7 36.7 IBUs
0.31 tsp Irish Moss (Boil 10.0 mins) Fining 8 -
20.00 g Amarillo Gold [8.50 %] - Boil 10.0 min Hop 9 5.8 IBUs
20.00 g Citra [12.00 %] - Boil 10.0 min Hop 10 8.2 IBUs
20.00 g Columbus (Tomahawk) [14.00 %] - Boil 10. Hop 11 9.6 IBUs
20.00 g Amarillo Gold [8.50 %] - Aroma Steep 60. Hop 12 0.0 IBUs
20.00 g Citra [12.00 %] - Aroma Steep 0.0 min Hop 13 0.0 IBUs
20.00 g Columbus (Tomahawk) [14.00 %] - Aroma St Hop 14 0.0 IBUs
2.0 pkg Safale American (DCL/Fermentis #US-05) Yeast 15
Ætla svo að þurrhumla með 20 grömmum af Columbus, Amarillo og Citra
Þetta er mín eigin útfærsla byggt á netvafri, nokkrum bókum, og svo þessum upplýsingum: http://8wired.co.nz/our-brews/tall-poppy" onclick="window.open(this.href);return false;
Er svosem ekki að reyna klóna, en það væri frábært að fá bjór í svipuðum stíl þar sem þetta er afar góður bjór. Þessi ætti að verða kominn á krana eftir svona 2 vikur, verður áhugavert að sjá
Hér er hann í glasi, virkilega góður bjór. Ferskir humlar í angan og bragði og svo karamela og malt í eftirbragði.
Varð samt full sterkur hjá mér, eftir 2-3 glös byrjar vel að svífa á mann, það bitnar samt sem áður ekki það mikið á bragðinu. O.G var 1.080 í stað 1.071, nýtnin er alltaf að fara upp hjá mér að einhverjum orsökum, og hann endaði í 1.010 svo hann vær rúm 9%. Myndi reyna að hitta á 1.070, eða jafnvel örlítið lægra, hugsa að þetta væri fínn ~6% bjór.