Ég og félagi minn í bruggklúbbnum ákváðum fyrir nokkru (eftir þónokkra bjóra) að við þyrftum að gera humarbjór. Í gær létum við verða af því.
Uppskriftin:
77.5% Marris Otter
15% Vienna
3.75% C-20
3.75% Victory
Humlar:
28 gr East Kent Goldings @ 60
14 gr East Kent Goldings @30
Við vildum engar late additions, þar sem þær gætu hulið bragðið af humrinum.
Ger:
English Ale, S-04
Humrar:
3 stk, amerískir humrar. Suðum þá fyrst.
Við gerðum 20 lítra lögn hvor, og höfðum þær eins fyrir utan viðbótina af humrinum.
Í fyrri lögninni, þegar um 20 mínútur voru eftir að suðunni smelltum við um 1.5 kg af heilum humri útí virtinn.
Í seinni lögninni, þegar 25 mínútur voru eftir, bættum við 1.5 kg af humri útí, en í þetta sinn rifum við hann niður, og brutum upp skelina á klónum og fótum, til að reyna að fá aðeins meira bragð útí bjórinn.
Svona leit þetta út í lokinn
Við enduðum svo auðvitað daginn á því að borða humarinn, var ansi ljúffengur, létt humlaður og dísætur
Kemur svo í ljós hvort þetta reynist drykkjarhæft