Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónibbum)

Leyfið spjallverjum að fylgjast með því sem þú ert að gerja. Skrifaðu lýsingu fyrir og eftir gerjun til að sýna okkur hvað hægt er að gera og hverju þið lendið í.
Post Reply
viddi
Gáfnagerill
Posts: 216
Joined: 28. May 2010 16:21
Location: Hafnarfjörður

Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónibbum)

Post by viddi »

Ákvað að gera smá "pilot" brugg áður en ég hendi í 20 lítra. Verð líka að brugga að heiman þegar ég geri 20L laganir og ákvað að prófa að brugga heima á svölum með lausri hellu. Þetta reyndist ótrúlega lítið mál þegar upp var staðið og eitthvað sem ég mun prófa að gera aftur.

Uppskriftin:

1,50 kg Pale Malt (Weyermann) (6,5 EBC) Grain 1 69,8 %
0,20 kg Caramunich II (Weyermann) (124,1 EBC) Grain 2 9,3 %
0,20 kg Oats, Flaked (2,0 EBC) Grain 3 9,3 %
0,10 kg Carahell (Weyermann) (25,6 EBC) Grain 4 4,7 %
0,10 kg Roasted Barley (591,0 EBC) Grain 5 4,7 %
0,05 kg Carafa III (Weyermann) (1034,3 EBC) Grain 6 2,3 %
9,00 g Centennial [10,00 %] - Boil 60,0 min Hop 7 40,9 IBUs
2,50 g Centennial [10,00 %] - Boil 10,0 min Hop 9 2,3 IBUs
2,50 g Centennial [10,00 %] - Boil 5,0 min Hop 10 1,9 IBUs
Notaði svo 60ml slurry af WY1968
OG: 1.070

Legg reykt habanerochilli og kakónibbur í romm sem fær svo að fljóta með í secondary. Meira um það síðar.

Nokkrar myndir frá ferlinu:
Attachments
Mesking að hefjast
Mesking að hefjast
IMG_7723.jpg (983.96 KiB) Viewed 24826 times
Virkaði á mig sem góð hugmynd en náði ekki að stýra hitanum í ofninum nógu vel svo meskingin var allt of köld. Bætti við hálftíma á 69° og smellhitti PBG (1.060)
Virkaði á mig sem góð hugmynd en náði ekki að stýra hitanum í ofninum nógu vel svo meskingin var allt of köld. Bætti við hálftíma á 69° og smellhitti PBG (1.060)
IMG_7725.jpg (910.82 KiB) Viewed 24826 times
Humls away
Humls away
IMG_7735.jpg (783.27 KiB) Viewed 24826 times
Kælt í eldhúsvaskinum
Kælt í eldhúsvaskinum
IMG_7736.jpg (855.33 KiB) Viewed 24826 times
Tilbúið til gerjunar
Tilbúið til gerjunar
IMG_7737.jpg (557.34 KiB) Viewed 24826 times
Habanero og bananapipar. Fræhreinsað enda er stefnt á að fá meira bragð en hita.
Habanero og bananapipar. Fræhreinsað enda er stefnt á að fá meira bragð en hita.
IMG_7729.jpg (1.04 MiB) Viewed 24826 times
Reykkassinn klár
Reykkassinn klár
IMG_7731.jpg (1.12 MiB) Viewed 24826 times
Reykt habanero / bananapipar
Reykt habanero / bananapipar
IMG_7732.jpg (1.16 MiB) Viewed 24826 times
ViTo brugghús
Næst: Tripel
Í gerjun: Saison, Porter
Á kút: APA, Tunnuþroskaður stout
Á flösku: Haugur
Buy a man a beer and he wastes an hour. Teach a man to brew and he wastes a lifetime.
User avatar
bergrisi
Undragerill
Posts: 948
Joined: 27. Apr 2011 23:24
Location: Keflavík

Re: Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónib

Post by bergrisi »

Sniðugt. Mig langar að gera tilraun með chilli í hveitibjór og jafnvel Lime.

Hef mjög gaman af svona tilraunum. Bruggdagur á morgun hjá mér.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
viddi
Gáfnagerill
Posts: 216
Joined: 28. May 2010 16:21
Location: Hafnarfjörður

Re: Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónib

Post by viddi »

.... oooooog þríf eldhúsið eftir B - O - B - U. Gerslettur inni í skápunum. Muna að setja poka yfir næst.
ViTo brugghús
Næst: Tripel
Í gerjun: Saison, Porter
Á kút: APA, Tunnuþroskaður stout
Á flösku: Haugur
Buy a man a beer and he wastes an hour. Teach a man to brew and he wastes a lifetime.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónib

Post by hrafnkell »

Ansi lítið headspace fyrir primary :)
viddi
Gáfnagerill
Posts: 216
Joined: 28. May 2010 16:21
Location: Hafnarfjörður

Re: Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónib

Post by viddi »

Gat sagt mér það sjálfur en stundum verður maður bara að reka sig á :)
ViTo brugghús
Næst: Tripel
Í gerjun: Saison, Porter
Á kút: APA, Tunnuþroskaður stout
Á flösku: Haugur
Buy a man a beer and he wastes an hour. Teach a man to brew and he wastes a lifetime.
gm-
Gáfnagerill
Posts: 317
Joined: 21. Jan 2013 17:22
Location: Hafnafjörður

Re: Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónib

Post by gm- »

Mjög áhugaverð uppskrift, lætur vita hvernig til tekst og hvort bragðið af piparnum kemur vel í ljós.

Svo er alltaf gott að nota blow-off tube þegar headspace er lítið, lærði það the hard way :lol:
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónib

Post by hrafnkell »

gm- wrote:Mjög áhugaverð uppskrift, lætur vita hvernig til tekst og hvort bragðið af piparnum kemur vel í ljós.

Svo er alltaf gott að nota blow-off tube þegar headspace er lítið, lærði það the hard way :lol:
Nokkuð viss um að allir bruggarar læri það "the hard way"... Maður lætur ekki segjast fyrr en loftið er krausenlitað :)
QTab
Kraftagerill
Posts: 50
Joined: 15. Aug 2012 22:22

Re: Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónib

Post by QTab »

hrafnkell wrote: Nokkuð viss um að allir bruggarar læri það "the hard way"... Maður lætur ekki segjast fyrr en loftið er krausenlitað :)
sérlega skemmtilegt þegar það gerist með berjabættum bjór (jarða og hindberjum) eldrautt krausen = eldhúsið hjá mér varð eins og sláturhús :lol:
User avatar
helgibelgi
Undragerill
Posts: 773
Joined: 6. Nov 2010 22:29
Location: Reykjavík, Iceland
Contact:

Re: Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónib

Post by helgibelgi »

Er þetta svona gallon growler? Fáránlega sniðugt fyrir prufur!

Spurning að koma blow-off tube á þetta svo maður lendi ekki í svona bombum?
viddi
Gáfnagerill
Posts: 216
Joined: 28. May 2010 16:21
Location: Hafnarfjörður

Re: Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónib

Post by viddi »

Dagur 2/3

5L growler. Eignaðist líka gallongrowler um daginn. Eldgamall undan kóki! Og já - blow-off tube klárlega málið næst.
Attachments
Og reykt habanero og kakónibbur komnar í góðan félagsskap Havana club.
Og reykt habanero og kakónibbur komnar í góðan félagsskap Havana club.
IMG_77403.JPG (1.02 MiB) Viewed 24688 times
Flaskan búin að sprengja af sér tappann. Tók vatnslásinn úr og gerjunin sprengdi tappann af aftur.
Flaskan búin að sprengja af sér tappann. Tók vatnslásinn úr og gerjunin sprengdi tappann af aftur.
IMG_7738.jpg (474.24 KiB) Viewed 24688 times
ViTo brugghús
Næst: Tripel
Í gerjun: Saison, Porter
Á kút: APA, Tunnuþroskaður stout
Á flösku: Haugur
Buy a man a beer and he wastes an hour. Teach a man to brew and he wastes a lifetime.
viddi
Gáfnagerill
Posts: 216
Joined: 28. May 2010 16:21
Location: Hafnarfjörður

Re: Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónib

Post by viddi »

17. febrúar 2013
Kareem litli er kominn í 1.025 (5,9% sumsé). Blandaði einum dropa af habanero/kakónibbumixinu í smotterí af sýninu og merkilega mikill hiti sem það gefur. Vonaðist eftir meira chillibragði og minni hita. Samt ansi lofandi. Kakónibbubragðið bíður í eftirbragðinu. Býst við að taka chillibútinn úr blöndunni og fleyta bjórnum yfir nibbur og rommafgang í secondary. Vatnslásinn samt ennþá að svo hann fær svolítið lengri tíma á primary.
ViTo brugghús
Næst: Tripel
Í gerjun: Saison, Porter
Á kút: APA, Tunnuþroskaður stout
Á flösku: Haugur
Buy a man a beer and he wastes an hour. Teach a man to brew and he wastes a lifetime.
viddi
Gáfnagerill
Posts: 216
Joined: 28. May 2010 16:21
Location: Hafnarfjörður

Re: Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónib

Post by viddi »

Kareem fór á flöskur áðan. 12 stykki nánar tiltekið. FG var 1.022 sem þýðir 6,3% og lendir þar með neðan stíls. En það er nú ekki aðal áhyggjuefnið heldur chillihitinn sem yfirgnæfir flest. Örlítið súkkulaðibragð í eftirbragðinu. Ákveðinn í að gera þennan aftur með reyktu jalapeno í stað habanero. Reykja lengur, keyra áfengisprósentuna aðeins upp og halda öðru nokkurn vegin eins. Annars líklega best að segja sem minnst þar til maður smakkar kolsýrða afurðina.
ViTo brugghús
Næst: Tripel
Í gerjun: Saison, Porter
Á kút: APA, Tunnuþroskaður stout
Á flösku: Haugur
Buy a man a beer and he wastes an hour. Teach a man to brew and he wastes a lifetime.
gm-
Gáfnagerill
Posts: 317
Joined: 21. Jan 2013 17:22
Location: Hafnafjörður

Re: Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónib

Post by gm- »

viddi wrote:Kareem fór á flöskur áðan. 12 stykki nánar tiltekið. FG var 1.022 sem þýðir 6,3% og lendir þar með neðan stíls. En það er nú ekki aðal áhyggjuefnið heldur chillihitinn sem yfirgnæfir flest. Örlítið súkkulaðibragð í eftirbragðinu. Ákveðinn í að gera þennan aftur með reyktu jalapeno í stað habanero. Reykja lengur, keyra áfengisprósentuna aðeins upp og halda öðru nokkurn vegin eins. Annars líklega best að segja sem minnst þar til maður smakkar kolsýrða afurðina.
Verður áhugavert að heyra hvort hitinn minnki dáldið með tímanum, veit að súrleiki og beiskja gerir það í þeim ávaxtabjórum sem ég hef gert. Endilega geymdu eins og 1-2 flöskur í 3-6 mánuði og smakkaðu svo :skal:
Proppe
Kraftagerill
Posts: 113
Joined: 24. May 2012 00:29

Re: Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónib

Post by Proppe »

Ég tók eftir því með kakónibbustátinn minn að kakóbragðið dofnaði frekar hratt.
Nú minnir hann meira á mokkastout en kakóstout, þegar ristaða maltið er orðið kakóinu yfirsterkara.

Chillihitinn er ekki líklegur til að fara langt. Capsacinið er merkilega endingargott.
viddi
Gáfnagerill
Posts: 216
Joined: 28. May 2010 16:21
Location: Hafnarfjörður

Re: Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónib

Post by viddi »

Þessi varð allt of sterkur. Nánast ekkert bragð nema chillihiti og svo örlítið eftirbragð. Samt eins og örlítið ávanabindandi. Fyrst sopi og maður hugsar "Nei andskotinn". Eftir smá stund verður maður samt að taka annan.

Nokkrar flöskur fara í geymslu og verður fróðlegt að sjá hvernig hann eldist.

Þá er það bara aftur að teikniborðinu og gera útgáfu 2.
ViTo brugghús
Næst: Tripel
Í gerjun: Saison, Porter
Á kút: APA, Tunnuþroskaður stout
Á flösku: Haugur
Buy a man a beer and he wastes an hour. Teach a man to brew and he wastes a lifetime.
User avatar
æpíei
Undragerill
Posts: 825
Joined: 14. Dec 2012 21:46

Re: Kareem jr (Imperial stout með reyktu habanero og kakónib

Post by æpíei »

Ég smakkaði pipar bjór um daginn og segi það sama. Þetta er óþægilega vanabindandi andskoti :) Var að spá í að gera basic APA og setja smá pipar í secondary. Varðandi magn þá sýnist mér vera talað um 4 serrano piparrótir, skornar með fræjum í, í hverja 19 lítra, ca 1 vika. Piparinn má ekki taka völdin heldur vera þarna í réttu magni til að kitla bragðlaukana eftir að þú ert búinn að kyngja.
Post Reply