Jóladagatal 2016: 5. des: Stoutíð í bæ

Hér skal eingöngu skrá uppskriftir sem hafa verið prófaðar og gefið góða raun að mati bruggara, vina og/eða vandamanna. Nafn bjórstíls skal taka fram í titli þráðar. Dæmi: "Hvítur sloppur – Belgískur Hveitibjór"
Post Reply
offi
Villigerill
Posts: 24
Joined: 26. Aug 2012 10:48

Jóladagatal 2016: 5. des: Stoutíð í bæ

Post by offi »

Ég ætlaði að brugga þurran stout... og gerði það. Ég meskti við frekar lágt hitastig til að fá nettan þurran stout. Svo var gerjun að ljúka og ... ég fattaði að ég var búinn að melda mig í jóladagatalið og þetta var eina sem ég átti klárt. Ekki kannski jólalegt, svo ég ákvað að skella smá kaffi í hann til að fá smá twist. Ég tók 60 gr. af þokkalegum kaffibaunum, frekar mikið ristuðum og sveittum, marði þær gróft í morteli og skellti í frystinn í hálfan sólarhring til „sótthreinsunar“. Setti í þurrhumlunarstaukinn og útí bjórinn í 2 sólarhringa í lok gerjunar.

Mitt persónulega mat er að það þurfi meira boddí í bjórinn til að ráða við kaffibragðið. En vonandi smakkast þetta samt þokkalega. Hér er uppskriftin:

Korn:
  • 4,5 kg Munich II
    0,3 kg Caramunich III
    0,45 kg Carafa Special II
    0,1 kg Carafa Special III
    0,15 kg ristað bygg
    0,4 kg rúgur
Þetta meskti ég í 60 mín við 65°C. Skolaði kornið og fyllti að 26L markinu. Bullsauð í 30 mín án humla og svo:

Humlar:
  • 25 gr. Citra – 60 mín
    20 gr. Mittelfrüh – 10 mín
    5 gr. Citra – 10 mín
Ger:
  • Mangrove Jack´s Burton Union
Gerjað við 19°C. OG: 1.060, FG: 1.011. Kolsýrður á kút og tappað á flöskur 27. nóvember.

Vona að þið njótið.
20161128_183839_resized.jpg
Post Reply