Ég á mjög erfitt með að fylgja uppskriftum þegar ég er að elda og sama virðist eiga við um bjórgerðina. Eftir 3-4 laganir eftir uppskriftum annarra fór ég að gera tilraunir með mínar eigin uppskriftir og eftir 2 tilraunir sem ekki heppnuðust alveg eins og til var ætlast tókst mér að búa til bara alveg skratti góðan kaffi porter.
Amt Name Type # %/IBU
3.40 kg Pale Malt (2 Row) UK (5.9 EBC) Grain 58.6 %
1.50 kg Munich Malt (17.7 EBC) Grain 25.9 %
0.60 kg Caramunich Malt (110.3 EBC) Grain 10.4 %
0.30 kg Carafa I (663.9 EBC) Grain 5.2 %
18 g Columbus [14.00 %] - Boil 60.0 min Hop 29.1 IBUs
22 g Saaz [4.00 %] - Boil 30.0 min Hop 8.0 IBUs
22 g Saaz [4.00 %] - Boil 15.0 min Hop 5.2 IBUs
1 tsp Irish Moss (Boil 10.0 mins) Fining
1.0 pkg Nottingham (Danstar ) Yeast Notaði reyndar um 200 ml slurry úr fyrri lögun
Gerjaði þetta svo við í tveimur skrefum við um 21°C í 4 vikur.
Að lokum hellti ég upp á rammsterkt kaffi (150 gr í ca 0,5 lítra af vatni) og notaði það til að leysa upp priming sykurinn.
Ég var að klára fyrstu prufuna eftir viku á flösku og hann er bara alveg eins og ég stefndi á - kallast á mjúkir súkkulaði tónar og grófir ristaðir tónar úr dökka maltinu og kaffinu. Það fyrsta sem mér datt í hug var kaffi molinn sem var í Mackintosh's - en hverjum þykir auðvita sinn fugl fagur Ég get allavega mælt með þessu fyrir kaffi áhugamenn.
Ég er svo með nokkrar aðrar uppskriftir að leiðinni og vonandi falla þær í þann flokk sem hægt er að segja frá - ekki eins og þær tvær fyrstu sem verða drukknar þegar bragðskinið er aðeins farið að bjagast