Ég er búinn að smakka pale ale bjórinn frá þeim og fannst hann fínn. Drakk einn lítið kældann og annan beint úr ísskápnum og var sá kaldi ekki eins góður.
Sé á síðunni þeirra að það er von á 3 nýjum og ég bíð spenntur eftir að smakka þá.
Smakkaði Pale ale frá þeim og verð að setja hann ofarlega á lista hjá mér, finnst hann mjög góður og versla hann oftast ef mér langar í skotheldan bjór
White Ale frá þeim er einnig mjööööög mjúkur og góður, en ég er ekki mikið fyrir appelsínubragðið þrátt fyrir að það sinni sínum tilgangi.
Eftir um 2 White Ale þá langar mér ekki í fleirri. Samt mjög góður.
Þeir þrír sem ég hef bragðað (Pale Ale, White Ale og Dobbelbock) eru ágætir. Fyrsta flaskan er alltaf best, en svo fer á brattann að sækja eftir það. Engu að síður mjög góð framlög í íslenska bjórmenningu.
Fyrirhugað: Bruggpása. Í gerjun: Ekkert. Í þroskun / lageringu: Ekkert. Á flöskum: Ekkert. Bruggað (AG): 588 l.