Áhugasamur nýliði
Posted: 7. Jul 2016 10:45
Góðan daginn gott fólk
Var að fjárfesta í byrjendapakkanum frá Brew.is. Ég hef lengi haft áhuga á bjór og finnst hann góður. Mest þó verið að súpa af "main stream" bjórum ef svo má kalla, en líka verið til í að kanna nýjar áttir. Undanfarin ár hef ég mest drukkið af Tuborg Classic eins og kannski margir en líka nokkuð af bjórum eins og Einstök pale ale, hveitibjórum svo fátt eitt sé nefnt. Ég er búinn að vera rúlla í gegnum þræðina hérna sem og þær síður sem sérhæfa sig í þessu. Þetta er greinilega ótrúlega fjölbreytt og spennandi. Mig langar að geta bruggað lager bjór í framtíðinni en það þarfnast greinilega nokkuð nákvæmrar hitastýringar á gerjuninni. Ég er því nokkuð forvitinn um það hvernig fólk er að snúa sér í þeim málum. Einnig er gaman og gott að fá ábendingar um góða auðdrekkanlega bjóra(fyrir konuna) líka. Og talandi um konuna þá hafði ég ætlað mér líka að smella í hvítvín og því væri frábært að fá einhverjar leiðbeiningar varðandi það. Hún er mest fyrir millisætt létt hvítvín.
Með von um skemmtilegar og fróðlegar umræður. Mikið hlakka ég til
kv Örn