Sælir bruggarar;
Við erum nýjir í þessu sproti, þrír Suðurnesjamenn.
Við fengum að smakka all grain beer hjá félögum okkar og ekki var aftur snúið. Við byrjuðum að pæla og hanna og fórum um víðan völl í pælingum okkar. Þetta endaði með 100L rústfríum potti með 5500W elementi, dælu og tilheyrandi stýriboxi.
Við erum nýbúnir með fyrstu suðu og stefnum á að sjóða aftur í lok maí. Fórum af stað eins og flestir og settum í Bee Cave öl og næst verður það Hvítur sloppur sem lendir í pottinum.
Myndir og fleira frá okkur verður í heimasmíðaþræðinum okkar.