Sælir ég er nýr hér nafnið er Agnar.
ég bruggaði eða hrærði saman svona sírópsdót úr ámunni fyrir um það bil 2 mánuðum og var ekki alveg nógu hrifinn af því og forvitnaðist aðeins á netinu og rakst á þessa síðu meðal annars. ég er búinn að lesa og skoða video og er orðinn frekar heitur fyrir svona extract bruggun en er svona frekar smeykur við að demba mér út í svoleiðis því ég er ekki alveg klár á því hvenig bjór ég vill fá.
ég hef mjög gaman af því að drekka bjór og í mínu uppáhaldi er t.d. viking páskabjór,tuborg gold,viking gylltur og auðvitað tuburg jólaabjór )
væri ágætt ef eitthver hérna gæti leiðbeint mér í þessum fyrstu skefum mínum í átt að hinum fullkomna bjór )