Sælir, Atli heiti ég og er alger byrjandi í bjórgerð. Get eiginlega ekki kallað mig byrjanda, þar sem ég hef aldrei bruggað
En ég er búin að vera eins og svampur á veraldarvefnum undanfarna mánuði að sjúga í mig alla þá vitneskju sem er æskileg og komin ansi langt í þessu í hausnum á mér
Ég held t.d. að ég sé búin að lesa alla þræði inná þessu snilldarspjalli
En vegna peningaleysis hefur maður ekki náð að byrja.
Við erum tveir félagarnrir sem ætlum að leggja í okkur fyrstu lögn í næsta mánuði. Höfum ákveðið að BIAB verði frumraunin, en tengdó átti þennan líka fína 20 lítra pott sem á eftir að koma sér vel
Einnig vorum við svo heppnir að fá lánaðan stóran glerkút sem hefur legið í mörg ár í geymslu. Vandamálið er að hann hefur ekki verið þryfinn nógu vel og eru svona svartir blettir í botninum á honum.
Þannig að ég var að velta því fyrir mér hvort það lumaði ekki einhver hér á aðferð við að þrífa svona skítugan kút, eða hvort hann sé bara ónothæfur?
Ég er búin að leita á spjallsíðum, þar sem var ráðlagt að láta þetta liggja í einhverja daga í einhverju efni sem er sennilega ekki til á landinu, allavega næ ég ekki að koma því fyrir mig. Því var ég að vonast til að þið væruð með einhverja alíslenska og góða lausn á þessu