Hæhæ!
Erum að brugga með BIAB í 100L potti með ágætis árangri. Helsta vandamálið er að hífa upp pokann fullan af blautu korni (18 kg þurrt, ég giska á ~40kg blautt). Lausnin er að setja upp talíukerfi sem ætti að vera auðvelt ( sjá t.d. http://www.biabrewer.info/viewtopic.php ... ley+system" onclick="window.open(this.href);return false;) en spurningin er: í hvað á að krækja? Flestir erlendis virðast vera að krækja í pokann á 2-4 stöðum með ísaumuðum handföngum. Hefur einhver reynslu af slíkum saumaskap og getur deilt visku sinni?
Hin lausnin er að krækja í falska botninn og hífa hann upp, en mér sýnist það vera bæði dýrari lausn og flóknari útfærsla (þó alls ekki ómöguleg).