Af hverju viltu ryðfrítt?
Það eru nokkrar áðstæður fyrir því. Meskitunnan verður úr ryðfríu, ásamt öllum lokum og píputengjum. Silokon slöngur eru á milli loka. Svo að
1) Kopar litar út frá sér. Þótt að það sé ekki beint hættulegt er það leiðinlegt þegar maður vill halda kerfinu sínu eins stílhreinu og hægt er.
2) Þrif á kopar er leiðinlegur. Ef koparinn er mikið oxaður þarf að nota ediksýru. Lyktin af ediksýru hræðileg. Hef vonda reynsu af 100 % ediksýru
Veit að 3 % lyktar ekki eins megn en nógu vond samt.
3) Kostnaður á kopar hefur farið hækkandi síðustu ár og því er mögulega hægt að fá ryðfrítt á sama verði (fer þó eftir í hvaða landi maður er búsettur)
Reyndar er erfiðara að vinna ryðfría efnið en það er bara skemmtileg áskorun.
Varmaskiptin eru mun betri í koparnum,
Já veit það. Varmaleðni kopars er mun hærri en ryfrítt eða um 400 W/(m.K) á móti 16 W/(m.K). En skiptir það í raun máli? Samkvæmt þeim uplýsingum sem ég hef lesið á hinum og þessum net og spjallsíðum þá er hitinn á sæta virtinum alltaf sú sama og hitinn á vatninu í HLT. Það er að segja eftir að sæti virturinn hefur farið í gegnum spíralinn sem er staðsettur í HLT. Ég leyfi mér að vitna í Kal frá theelectricbrewery.com
Some will argue that using copper for the HERMS coil would be better given that copper is more efficient at transferring heat than stainless steel. In fluid heat transfers such as in our application, the difference is negligible. Our tests have shown that the temperature of the sweet wort exiting the HERMS coil is always equal to the temperature of water in the HLT so using copper would not have helped. In fact, we found that the two temperatures were always equal even when the temperature of the sweet wort entering the coil was considerably colder that of the HLT water. This was true even when circulating at a reasonably high rate (pump ball valve opened 50-100%).
Stainless steel is easier to clean, stronger, and holds up better over the years with contact with acidic liquids such as beer. We chose to go with stainless steel as much as possible in our setup over other metals such as copper, brass, or aluminum.
Ég er að henda saman varmafræðilegum reikningum til að finna út hvernig lengd og efni spíralsins hefur áhrif.
og ég hef svei mér þá aldrei séð neinn nota annað í HERMS.
Þeir sem eru með kerfið sitt úr ryðfríu stáli nota mjög oft (ef ekki oftar) ryðfrían spíral í HLT. Það er allavega mín upplifun eftir að hafa skoðað ryðfrí kerfi á net- og spjallsíðum.
Ef þetta er algjör steypa þá er ég alltaf opinn fyrir að vera leiðréttur