Hævert startari

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
Post Reply
busla
Kraftagerill
Posts: 63
Joined: 12. Sep 2012 14:02

Hævert startari

Post by busla »

Sælir og gleðilega sólstöðuhátíð.

Er einhver að nota hævert-startara eins og þenna hér?

Veit einhver hvort þetta fáist á Íslandi?

Ef ekki, þá ætla ég að panta 1 stk. og ef einhver vill vera með í þeirri pöntun þá getiði sent mér skilaboð.

Svo læt ég fylgja með texta úr Saga daganna eftir Árna Björnson:


"Þótt skilyrði til ölgerðar hafi verið óhæg vegna takmarkaðrar kornyrku, virðast menn ekki hafa látið deigan síga í þeim efnum, því að nálega hið eina sem ráða má af sögum um jólahald í heiðni lýtur að jóladrykkju, jólaöli og jólaveislum"


Nonni
User avatar
æpíei
Undragerill
Posts: 825
Joined: 14. Dec 2012 21:46

Re: Hævert startari

Post by æpíei »

Þessir virka bara á carboy með þröngum stút, td úr gleri eða Better Bottle. Ef þú vilt alhliða tæki sem virkar lika á hefðbundnar fötur mæli ég með svona, hef séð það í Ámunni og jafnvel brew.is

http://morebeer.com/products/easy-siphon-38-inch.html" onclick="window.open(this.href);return false;
busla
Kraftagerill
Posts: 63
Joined: 12. Sep 2012 14:02

Re: Hævert startari

Post by busla »

Ég er með bæði carboy og plast svo þetta hentar betur :-)
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Hævert startari

Post by hrafnkell »

Ég á autosiphon.. Sé ekki pointið með þessu, amk fyrir mig þar sem ég gerja næstum allt í fötum... Lítið mál að mixa svona á fötu samt ef maður vill.
busla
Kraftagerill
Posts: 63
Joined: 12. Sep 2012 14:02

Re: Hævert startari

Post by busla »

Hrafnkell: Er það pumpan?

Ég er að reyna að leysa þetta sull sem er í kringum átöppunina því ég vil ekki fara að troða slöngunni upp í mig. Það sem kom til greina var siphon með pumpu, eða þessi loft-siphon.
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Hævert startari

Post by hrafnkell »

Já, autosiphon er með pumpu.
User avatar
Idle
Yfirgerill
Posts: 1002
Joined: 25. Jun 2009 22:29
Location: Reykjavík

Re: Hævert startari

Post by Idle »

Pumpan (auto siphon) er þeim galla búin að pakkninginn byrjar gjarnan að springa vegna þurrks og endingin því ekki ýkja góð (1 ár eða þar um bil hjá mér, að mig minnir - var þó einstaklega virkur bruggari á þeim tíma). Aftur á móti lenti ég aldrei í vandræðum með venjulegan hævert sem ég ýmist saug eða lamdi niður í fötuna til að koma flæðinu í gang.

En ef sýklahræðslan er að fara með þig, mæli ég náttúrlega ekki með að auka á hana með því að sjúga slönguendann. Maður þarf þó að hafa einhverja afar sérstaka sýklaflóru í kjaftinum til að hún gæti mögulega lifað, dafnað og haft áhrif á bjórinn, að ég held. :)
Fyrirhugað: Bruggpása.
Í gerjun: Ekkert.
Í þroskun / lageringu: Ekkert.
Á flöskum: Ekkert.
Bruggað (AG): 588 l.
busla
Kraftagerill
Posts: 63
Joined: 12. Sep 2012 14:02

Re: Hævert startari

Post by busla »

Sýklahræðslan er enn á lágu stigi, en er til staðar :-) Það sem skiptir mig meira máli er að gera þetta hreinlegra. Í hvert skipti sem ég loka hævertnum (stífla slönguna) missi ég vökvan úr mínum enda slöngunnar. Það er svo sem í lagi því ég er með fötu fyrir neðan en þegar ég byrja á næstu flösku kemur næsti skammtur á meiri hraða sem þýðir meira súrefni í flöskuna.

Vandamálið með hævertin er því tvíþætt: Sýklahræðsla og súrefnishræðsla :-)

Ég þarf að leysa þetta einhvern veginn.
kari
Kraftagerill
Posts: 61
Joined: 21. Nov 2010 18:25

Re: Hævert startari

Post by kari »

Bottling bucket (með krana) og bottling wand í kranann
hrafnkell
Æðstigerill
Posts: 2568
Joined: 13. Oct 2009 22:06
Location: Reykjavik
Contact:

Re: Hævert startari

Post by hrafnkell »

kari wrote:Bottling bucket (með krana) og bottling wand í kranann
Sannleikurinn.
gm-
Gáfnagerill
Posts: 317
Joined: 21. Jan 2013 17:22
Location: Hafnafjörður

Re: Hævert startari

Post by gm- »

hrafnkell wrote:
kari wrote:Bottling bucket (með krana) og bottling wand í kranann
Sannleikurinn.
Nauðsynlegt í flöskun :skal:

Autosiphon er síðan snilld í að transfera úr gerjunaríláti yfir í bottling fötu eða kút.
Post Reply