Kvöldið bjórmenn og konur
Ég er alltaf að reyna að læra og datt í hug :
Ég fór í Vínkjallarann um daginn og var að kaupa dry malt fyrir kittið mitt... Aðeins að færa mig upp á skaftið loksins... stefnan á All grain, but all in good time....
Nú man ég ekki hvað hann heitir maðurinn sem á Vínkjallarann, en hann var að tala um að sumir væru að kaupa 5 kg af dry malt (eða spray malt eftir hvort þú vilt kalla það) og búa til bjór úr því. Kaupa svo humla og búa víst til ágætis bjór úr því.
Maður hefur vissulega miklu betri stjórn á beiskju og humlabragði og lykt með þessari aðferð, væntanlega hægt að nota LME úr Hagkaup (fyrst ég veit það er til þar) ef það er á ágætis kjörum en er svo sem ekki alveg að spá í því akkúrat núna.
Hann talaði um að menn væru að búa til 3 lagnir, sem sagt 60-70 lítra úr 5 kg af dry malt? (kannski með einhverjum dextrósa til að fá OG upp)
Sem þýðir u.þ.b. 1.66 kg af drymalt... Væri það ekki frekar þunnur bjór ef maður gerði þetta svona með dry malti einu og sér? og það svona litlu magni? Væri nú kannski ráð að henda inn byggi í þetta líka en bara pæling hvort þetta komi betur út en kittin...
Er þetta að koma ágætlega út hjá ykkur sem hafið prófað? Og hvernig hafið þið gert þetta fyrst og hvernig hafið þið svo endað með að gera þetta?
Og nær maður 3 lögnum úr þessu?
Happy happy beerday, Proximo